Sýning ársins opnar í Sigurhæðum með nýjum verkum Margrétar Jónsdóttur

Margrét Jónsdóttir   Mynd Þórgunnur Oddsdóttir
Margrét Jónsdóttir Mynd Þórgunnur Oddsdóttir

Laugardaginn 7. júní n.k. verður opnun á ferskri heildarsýningu í Menningarhúsi í Sigurhæðum ásamt mögnuðum og glæsilegum nýjum verkum Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns, sem hún hefur unnið sérstaklega fyrir Sigurhæðir af einstakri natni síðastliðið ár. Þar gefur að líta 17 persónur tengdar sögu Sigurhæða auk nýrra veggverka.

Sýning Margrétar er hluti af 40 ára starfsafmæli hennar sem listamanns á Akureyri.

Opnunardagskráin hefst kl 13 með ávarpi Logi Más Einarssonar, ráðherra menningarmála, nýsköpunar og háskóla.

Frumflutt verður tónlist eftir Gunnar Haraldsson, meistaranema í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands, sem hann samdi í vor sérstaklega í samvinnu við Margréti fyrir Sigurhæðir.

Léttar veitingar í boði - enginn aðgangseyrir - öll velkomin.

Hægt verður að ganga um húsið, fá nasaþef af nýjum og spennandi hlutum sem eru að þróast á efri hæð Sigurhæða. Kl. 14-14.20 verður boðið upp á listamannsspjall við Margréti. Sigurhæðir verða opnar til kl. 17 þennan dag og 9-17 á sunnudeginum.

Sigurhæðir verða svo opnar almenningi frá fimmtudegi til laugardaga kl. 9-17 alveg til 11 október í haust.

Starfsemi og sérverkefni Menningarhúss í Sigurhæðum í ár eru samfjármögnuð af ráðuneyti Menningar-, nýsköpunar og háskóla - Barnamenningarsjóði og Örvari, Akureyrarbæ, Uppbyggingarsjóði Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Menningarsjóði Akureyrar, Kvenréttindafélagi Íslands, Útgáfufélaginu, Flóru menningarhúsi og með fjárframlögum almennings.

Lykilmaður í sýningarhönnun í Sigurhæðum er Þórarinn Blöndal, en Þórgunnur Oddsdóttir, Hlynur Hallsson og Kristín Þóra Kjartansdóttir vinna ásamt fjölda fagaðila að gerð og þróun staðarins.

Nýjast