Óvissustig enn í gildi á Norðurlandi eystra

Leiðindarveður hefur verið í dag og þvi miður lætur betri tíð á sér standa.. Myndir  Vikublaðið /Lan…
Leiðindarveður hefur verið í dag og þvi miður lætur betri tíð á sér standa.. Myndir Vikublaðið /Landsbjörg

Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi fyrr i kvöld frá sér eftirfarandi athugasemd:

Óvissustig er enn í gildi hér á Norðurlandi eystra vegna þessa norðan áhlaups sem gengur nú yfir svæðið.
Talsvert snjóaði sl. nótt og þurftu björgunarsveitir að sinna tveimur verkefnum vegna búfjár sem bændur þurftu aðstoðar við að koma í hús. Fyrra verkefnið var í Ólafsfirði í gærkveldi og það síðara í Skíðadal í dag. Verkefnið í Skíðadal var mjög krefjandi og tók tæplega 10 klst. að sinna því og ekki náðist að sækja allt það fé sem leitað var að. Nú hefur hlýnað aðeins í veðri og nær öll úrkoma í formi rigningar og verður svo áfram.
 
Frá björgunaraðgerðum í Skíðadal
 
Mesta áskorunin sem eftir lifir þessa áhlaups er það úrkomumagn sem þegar hefur fallið og vænta má að falli næsta sólarhringinn, þá sérstaklega á Tröllaskaga og Flateyjarskaga, en það mun verða talsvert samkvæmt spá Veðurstofunnar.
 
Vænta má að aurskriður falli á þessum slóðum með einhverjum hætti og að grjóthrun verði en við höfum verið í þéttu samtali við íbúa, forsvarsmenn sveitarfélaga, viðbragðsaðila, Veðurstofuna og Vegagerðina til að afla eins mikilla upplýsinga um stöðuna hverju sinni svo að hægt sé að miðla síðan áfram til þeirra sem málið varðar til úrvinnslu og ákvarðanatöku.
 
Það samtal mun halda áfram inn í kvöldið og síðan áfram á morgun.
 
Ekki hefur komið til neinna rýminga né lokanna enn sem komið er en ekki er útilokað að svo verði á einhverjum tímapunkti.

Nýjast