Aðalfundur Krabbameinsfélagsins skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða greiðsluþátttöku vegna sjúkradvalar innanlands og tryggja, til dæmis með greiðsluþaki, að kostnaður sjúklings og aðstandenda vegna nauðsynlegrar dvalar á sjúkrahóteli sligi ekki fólk af landsbyggðinni.
Dæmi eru um að einstaklingar hafi þurft að greiða yfir 500.000 kr. á ári fyrir dvöl á sjúkrahóteli.
Ýmsar aðgerðir hafa verið innleiddar til að draga úr greiðslubyrði þeirra sem þurfa á mikilli heilbrigðisþjónustu að halda. Má þar t.d. nefna greiðsluþak fyrir heilbrigðisþjónustu og lyf, ásamt þátttöku Sjúkratrygginga í ferðakostnaði. Margir þurfa hins vegar að dvelja langdvölum fjarri heimili sínu með nánum aðstandanda vegna lífsnauðsynlegra lyfja- og/eða geislameðferða og kostnaður fyrir slíkt safnast hratt saman þegar sólarhringsdvöl kostar allt að 8.750 kr.
Á nýafstöðnum aðalfundi Krabbameinsfélagsins var samþykkt ályktun þar sem skorað er á heilbrigðisráðherra að endurskoða fyrirkomulag varðandi greiðsluþátttöku vegna sjúkradvalar innanlands. Í ályktuninni er lagt til greiðsluþak á dvalarkostnað, sambærilegt því sem þekkist nú þegar varðandi greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu og lyf.
Hér fyrir neðan má lesa ályktunina í heild sinni:
Jafnt aðgengi að krabbameinsþjónustu óháð búsetu
Greiðsluþak á dvalarkostnað vegna heilbrigðisþjónustu
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins haldinn þann 24. maí 2025 skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða greiðsluþátttöku vegna sjúkradvalar innanlands og tryggja að kostnaður sjúklings og aðstandenda vegna nauðsynlegrar dvalar á sjúkrahóteli sligi ekki fólk af landsbyggðinni. Slíkt mætti til dæmis útfæra með greiðsluþaki, líkt og þekkist nú þegar varðandi greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu og lyf.
Með þessu væri stigið mikilvægt framfaraskref í átt að auknum jöfnuði óháð búsetu.
Þak á greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu og lyf og greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga í ferðakostnaði tryggja ákveðinn jöfnuð þegar kemur að greiningu og meðferð krabbameina. Greiðsluþak fyrir heilbrigðisþjónustu er 35.824 kr. og almennt greiðsluþak lyfja er 62.000 kr. að hámarki á 12 mánaða tímabili.
Jöfnuði er hins vegar ekki náð þegar horft er til búsetu.
Krabbameinslyfjameðferðir fyrir íbúa af landsbyggðinni fara að stórum hluta fram á Landspítala. Þar eru sértækar, lífsnauðsynlegar meðferðir í boði sem ekki er hægt að veita alls staðar á landinu. Hluti fólks dvelur í íbúðum Krabbameinsfélagsins en margir nýta þjónustu sjúkrahótelsins. Flestir eru sem betur fer í þeirri stöðu að geta haft með sér aðstandanda en stuðningur þeirra er gríðarlega mikilvægur í gegnum erfiðar meðferðir.
Fyrir sólarhringsdvöl á sjúkrahóteli greiða sjúklingar 1.890 kr. á sólarhring með fæði. Fyrir aðstandanda kostar gistingin 1.890 kr. og fæði 4.970 kr. á sólarhring. Sólarhringurinn getur því kostað allt að 8.750 kr. Margir þurfa því miður að dvelja langdvölum fjarri heimili sínu vegna lyfja- og/eða geislameðferða og dæmi eru um að einstaklingar hafi þurft að greiða yfir 500.000 kr. á ári fyrir dvöl á sjúkrahóteli vegna nauðsynlegra meðferða sem þeir geta ekki sótt í sinni heimabyggð.
Til samanburðar má nefna að þurfi sjúklingur að nýta heilbrigðisþjónustu erlendis taka Sjúkratryggingar þátt í kostnaði vegna uppihalds sjúklings og aðstandenda með greiðslu dagpeninga eftir ákveðnum reglum.
Frá þessu segir á krabb.is