Eignasafn félagslegra íbúða skoðað með sölu óhagkvæmra eigna í huga
Velferðarráð Akureyrar leggur til að farið verði í það verkefni að skoða eignasafn félagslegra leiguíbúða með sölu óhagkvæmra eigna í huga, mikilvægt er að koma til móts við þá sem hafa verið hvað lengst á biðlista. Sviðsstjóra var falið að vinna að því ásamt sviðsstjóra UMSA og fjármálastjóra.