Lokaorðið - Ertu iðnaðarmaður ?

Tryggvi Gunnarsson
Tryggvi Gunnarsson

Í síðustu viku þurfti ég að skottast suður til Reykjavíkur í mörg mismunandi verkefni. Allt frá því að láta sérfræðing skoða mig, heimsækja vini og vandamenn og ekki síst að hitta börn mín og barnabörn sem búa á Suðurlandinu. Ég fór vel undirbúinn og skipulagði ferðina þannig að tíminn myndi nýtast sem best.

Það var margt fallegt og skemmtilegt sem gerðist í þessi ferð. Hún var eiginlega frábær og enn einu sinni sannast það að eiga góða vini sem standa með manni í blíðu og stríðu er ómetanlegt. Gleðistundir með æskufélögum þar sem hlátur er í aðalhlutverki, sagðar ófár sögur í léttum dúr frá æskuárunum sem fengu tárin til að streyma niður kinnarnar. Yndislegt.

Það er þó tvennt sem stendur upp úr sem gerði það verkum að ég hef ofurtrú á fólkinu sem kemur til með erfa landið. Fyrra atvikið átti sér stað þegar ég var á leiðinni að hitta einn góðan félaga, hann hringdi í mig og bað mig að koma við í búð og kaupa fyrir sig sígarretttur. Ég skottaðist inn Bónus fór beint á kassann þar sem beið mín heldur hress afgreiðslustúlka með bros á vör og ánægð með lífið.

Ég bar upp erindið, ég ætla að fá þrjá bláa Winston. Haldið þið ekki að þessi snaggaralega og hressa afgreiðslustúlka skelli ekki bara upp úr og horfir á mig þennan rúmlega sextuga kall og spyr, ertu að byrja að reykja?

Segir svo í gegnum hláturinn að það séu ca 15 ár síðan Bónus hætti að selja tóbak.

Hitt atvikið var heimsókn í sundlaugina í heimabæ afastrákana sem stóð svo sannarlega upp úr. Það var þó ekki sjálf sundferðin sem stóð uppúr þar sem við köfuðum, fórum í rennibrautir, kalda pottinn og heitu pottana heldur þegar ég var að borga mig inn, ég er nefnilega pínu gamaldags, vill alltaf vera með peningaseðla á mér bara svona ef eitthvað kemur upp á.

Ég rétti ungum hressum síbrosandi afgreiðslumanni einn bláann seðil, hann horfir á mig og spyr sposkur, ertu iðnaðarmaður?

Framtíðin er björt.

Nýjast