Eyjafjarðarsveit hefur haft frumkvæði að því að kanna grundvöll fyrir stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, að fyrirmynd sambærilegra hagsmunasamtaka.
Markmiðið er að skapa sameiginlegan vettvang sveitarfélaga þar sem landbúnaður er mikilvægur þáttur í atvinnulífi og samfélagi, til hagsmunagæslu í málefnum eins og skipulagsmálum, tekjustofnum og samskiptum við ríkisvaldið.
Þreifingar hafa farið fram meðal sveitarfélaga og eru viðbrögð jákvæð. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt samhljóða þátttöku sveitarfélagsins í samtökunum.