Málmiðnbraut VMA fékk á dögunum nýja standborvél til notkunar í vélasal skólans. Tækjabúnaður í málmiðngreinum eldist hratt og er endurnýjun hans dýr, en góðir bakhjarlar skólans hlupu undir bagga að þessu sinni.
Gjafarnir voru frá Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, og þremur fyrirtækjum, Slippurinn Akureyri, Sindra og Kælismiðjunni Frost.
„Þetta er brautinni algjörlega ómetanlegt því það er nú svo að tækjabúnaðurinn sem þarf til kennslu í grunndeild málmiðnaðar og í málmsmíðagreinum gengur úr sér með árunum og hann þarf því að endurnýja,“ segir í frétt á vef skólans.