Gerði upp húsið og fann sjálfa sig á ný

Barry og Hildur við Kaffi Aðalstein á nýliðnu sumri. Ljósmyndir/aðsendar
Barry og Hildur við Kaffi Aðalstein á nýliðnu sumri. Ljósmyndir/aðsendar

Endurbygging Mela hjálpaði Hildi Óladóttur að ná heilsu á ný. Barry Laker kom fyrst að húsinu sem gestur og hélt að verkinu yrði aldrei lokið. Nú eru þau hjón, hafa tekið á móti yfir þúsund gestum í litlu kaffihúsi og bíða þess að einhver taki við keflinu.

Þegar Barry Laker sá Mela á Kópaskeri fyrst, skömmu eftir að Hildur Óladóttir keypti húsið árið 2016, taldi hann ólíklegt að endurbótunum yrði nokkurn tíma lokið. Hann hafði sjálfur starfað við byggingar í Bretlandi og sá hversu umfangsmikið verkefnið var.

„Ég man að ég hugsaði með mér að þetta yrði aldrei klárað. Ég hafði ekki hugmynd um að ég ætti eftir að búa þarna og vera giftur eigandanum,“ segir hann.

Saga þeirra Hildar er samofin endurreisn gamla hússins við sjávarsíðuna. Hún nær frá erfiðum kaflaskiptum og margra ára uppbyggingu til nýs sambands og kaffihúss sem varð mun meira en þau höfðu ætlað sér.

Húsið hjálpaði henni aftur á fætur

Hildur er fædd og uppalin á Kópaskeri. Hún og tvíburasystir hennar, Halla, eru úr átta systkina hópi og foreldrar þeirra byggðu húsið Skóga árið 1954. Hildur fór ung að heiman til náms og starfaði síðar um árabil sem leikskólakennari á Akureyri.

„Rætur mínar við samfélagið eru því mjög sterkar,“ segir hún.

Árið 2016 varð hún fyrir alvarlegri kulnun og þurfti að taka sér hlé frá vinnu.

„Þá fer maður að hugsa og hugsar mikið. Kannski var kominn tími til að skipta um gír, gera eitthvað nýtt og skapandi fyrir mann sjálfan. Bróðir minn hafði verið að leita eftir því að einhver vildi gera upp Mela á Kópaskeri, en húsið var þá í algerri niðurníðslu. Ég og fyrrverandi maki minn ákváðum að stökkva á þessa hugmynd.“

Hún keypti húsið af Íbúðalánasjóði og þau hófust handa. Uppbyggingin varð um leið hluti af bata hennar.

„Þarna gat ég unnið nokkra klukkutíma á dag, tekið mér frí og haft þetta eins og ég vildi á meðan ég var að ná upp þreki og orku á ný. Þannig hófst ævintýrið. Ævintýri sem reyndist miklu meira, stærra og tímafrekara en mann hefði getað órað fyrir. Kannski var það best að maður gerði sér ekki grein fyrir vinnunni því þá hefði maður kannski aldrei lagt af stað!“

Hildur hefur skráð uppbygginguna í um 200 blaðsíðna skjal og segir þar vera efni í heila bók.

„Í stuttu máli má segja að þetta hafi verið hálfgert brjálæði en um leið skemmtilegt og skapandi. Mér leiddist aldrei eina einustu stund á Melum til að byrja með.“

Fjármögnunin reyndist henni þó mikil þolraun. Að hennar sögn var erfitt að fá lán til uppbyggingarinnar, meðal annars vegna lágs fasteignamats á svæðinu. Að lokum fékk hún fyrirgreiðslu hjá Byggðastofnun en þurfti einnig að leita til fjölskyldunnar eftir brúarfjármögnun.

„Þarna stóð fjölskylda mín þétt upp við mig og ég hef í gegnum ferlið fengið gríðarlega mikla hjálp frá bæði þeim og mínum bestu vinum.“

Hún hóf útleigu stúdíóíbúðar í húsinu árið 2020 og bætti smám saman við gistingu. Vorið 2022 skildu leiðir hennar og fyrrverandi maka og hún hélt rekstrinum áfram ein. Á sumrin tók hún á móti gestum á Kópaskeri en vann sem leikskólakennari á Akureyri yfir veturinn.

„Það sem hefur gefið mér hvað mest er fyrst og fremst að ég fékk heilsu mína á ný. Ég er himinglöð yfir því að geta gefið samfélaginu mínu, þar sem ég ólst upp, þetta fallega hús og tækifæri til að fá fólk til að koma til Kópaskers.“

Hestarnir vísuðu Barry leiðina

Leið Barry til Íslands hófst með ferð um hringveginn árið 2012. Hann hafði lengi stundað hestamennsku og kom aftur árið eftir í tíu daga hestaferð frá Höfn að Óbyggðasetrinu með Steingrími Karlssyni, Denna.

„Sú ferð gjörbreytti því hvernig ég hugsaði um hestahald í Bretlandi. Skömmu síðar keypti ég tvo íslenska hesta, annan sem var ræktaður í Bretlandi og hinn flutti ég inn frá Íslandi. Eftir það varð ekki aftur snúið.“

Hann reyndi að haga hestahaldinu að íslenskum hætti og hafði hestana úti allan sólarhringinn í öllum veðrum.

Árið 2014 lá leið hans á hrossabú í nágrenni Ásbyrgis og Kópaskers. Hann vingaðist við fjölskylduna og kom aftur og aftur, stundum til lengri dvalar og til að hjálpa til. Í gegnum þau tengsl kynntist hann Melum og síðar Hildi.

„Dóttir bóndans hafði árum saman sagt mér að hún þekkti hina fullkomnu konu fyrir mig. En ég var giftur og Hildur í sambandi,“ segir Barry.

Þegar aðstæður breyttust ákvað hann loks að hlusta.

„Í hvert skipti sem við hittumst sagði hún að hún þekkti enn hina fullkomnu konu og ég lét það yfirleitt fram hjá mér fara. En í þetta sinn sagði ég: Segðu mér meira. Þar byrjaði þessi kafli í lífi mínu.“

Þau kynntust haustið 2024 og níu mánuðum síðar flutti Barry til Íslands. Hildur hafði þá verið farin að hugsa alvarlega um að selja Mela.

„Það var þungur baggi að þurfa að greiða af tveimur húsnæðum, einu á Melum og leigja síðan á Akureyri yfir vetrarmánuðina. Þá kemur Barry til sögunnar,“ segir hún.

Saman ákváðu þau að setjast að á Kópaskeri og kanna möguleika á gistirekstri allt árið. Barry hafði rekið byggingarfyrirtæki með föður sínum í Bretlandi og gekk beint í þau verk sem eftir voru.

„Það voru enn nokkur smáatriði eftir á Melum sem ég kláraði árið 2025. Ég hef því náð að setja minn eigin svip á húsið,“ segir hann.

Íslenskan hefur líka fengið sitt pláss í nýja lífinu.

„Þegar ég flutti hingað var ég ákveðinn í að læra íslensku og hef komið sjálfum mér á óvart. Kannski hjálpar að Hildur er leikskólakennari. Við höfum hlegið mikið saman við tungumálanámið.“

Og þegar hann talar um fyrra líf sitt í Bretlandi leiðréttir hann sjálfur orðalagið.

„Ég átti hesta í Bretlandi og taktu eftir að ég segi ekki heima!“

Gluggi breytti geymslunni í kaffihús

Kaffi Aðalsteinn hófst með gömlum gámi sem hafði verið notaður undir efni og áhöld við endurbætur Mela. Fyrst átti að innrétta geymslu, en hugmyndin tók fljótt breytingum.

„Kannski gerði ég þau mistök að setja glugga á aðra hliðina. Þá vissum við að þetta yrði ekki staður til að geyma verkfærin mín!“ segir Barry.

Úr varð morgunverðaraðstaða fyrir gistigesti og síðan lítið kaffihús. Nafnið vísar til Aðalsteinshúss, sem áður stóð á lóðinni og var jafnan kallað Aðalsteinn.

Við innréttinguna nýtti Barry að mestu gamlan efnivið, meðal annars timbur úr lofti og veggjum Mela. Gamlar hurðir og búrskápur úr húsinu fengu einnig nýtt hlutverk.

„Þegar Barry var búinn að innrétta gáminn fannst okkur upplagt að hafa þarna kaffi og kökur til sölu yfir hádaginn til að nýta plássið sem best,“ segir Hildur.

Barry segir markmiðið líka hafa verið að gefa ferðamönnum ástæðu til að staldra við.

„Við höfðum séð fólk aka inn í þorpið og svo beint út aftur. Það fannst okkur synd, því það má segja að Kópasker sé hliðið að Melrakkasléttu. Markmiðið með kaffihúsinu var að fá fólk til að stoppa hér, þó ekki væri nema í tuttugu mínútur.“

Bökuðu dag og nótt

Viðtökurnar fóru fram úr öllum vonum. Hildur hafði áður tekið á móti rúmlega 300 gestum á hverju sumri í Bakkaböðunum, heitu pottunum á lóðinni. Þau töldu að sá hópur yrði uppistaðan í kaffihúsagestunum.

„En raunin varð allt önnur. Í sumar heimsóttu okkur yfir þúsund manns. Það má segja að við höfum staðið í litla eldhúsinu okkar og bakað dag og nótt til að svara eftirspurn,“ segir Hildur.

Úrvalið var haft fremur lítið en áhersla lögð á ferskan bakstur. Á boðstólum voru meðal annars vöfflur með rjóma og rabarbarasultu, hjónabandssæla, sjónvarpskaka, bresk banoffee-baka og kókoskúlur. Kaffið var borið fram í pressukönnum.

Það er þó fólkið sem stendur helst upp úr eftir sumarið.

„Þarna gafst fólki allt í einu tækifæri til að stoppa og spjalla við fólk sem býr á staðnum, þekkir staðhætti og hefur áhuga á svæðinu. Við leiðbeindum ótal mörgum og gáfum upplýsingar um staði sem gaman er að skoða hér í grenndinni.“

Stundum tóku heimsóknirnar óvænta stefnu.

„Eitt sinn bar að garði fjóra unga sjálfstæðismenn sem voru himinglaðir að finna kaffihús. Þeir reyndust vera með hljóðfæri í bílnum sínum og áður en við vissum af voru þeir farnir að spila fyrir okkur og gesti.“

Öðru sinni var von á átján manna hestahópi í pottana.

„Þegar á reyndi vildu gestirnir flestir frekar hugga sig inni í kaffihúsinu og fá sér kaffi og köku. Þá var þröngt á þingi en allir glaðir.“

Kaffihúsið rúmar með góðu móti aðeins um sjö manns í einu. Á góðviðrisdögum var hins vegar hægt að opna gáminn og gestir sátu um lóðina.

„Það voru fallegustu dagarnir, allir að njóta og margir einnig að busla í sjónum.“

Þúsundasti viðskiptavinurinn var sérstakt tilefni. Brasilísk hjón komu inn úr rigningunni seint í ágúst og fengu ókeypis kaffi og vöfflur til að fagna áfanganum.

Kyrrðin býr til tíma

Þau sjá tækifæri í gistirekstri allt árið og hafa þegar fundið fyrir aukinni eftirspurn snemma vors og fram eftir hausti. Kaffihúsið verður ekki opið almenningi daglega yfir veturinn, en gistigestum býðst morgunverður þar. Helgaropnanir og opnun við sérstök tilefni koma einnig til greina.

Hildur segir vetrardvölina hafa reynst sér erfiðari en Barry, sem sé vanur sveitalífinu.

„Mér fannst veturinn langur og vindasamur. Þú finnur ekki eins mikið fyrir því í bæ eins og Akureyri. Hér á Kópaskeri er maður fyrir opnu hafi og eins notalegt, fallegt og gott og það er yfir sumarmánuðina þá eru veturnir harðari.“

Hún starfar jafnframt sem deildarstjóri í leikskóla í sveitinni. Barry hefur því annast reksturinn þegar hún er í vinnu. Samhliða hafa þau bæði unnið að handverki, meðal annars úr rekaviði og steinum úr fjörunni, og selt í kaffihúsinu. Halla, tvíburasystir Hildar, hefur einnig lagt til prjónavörur.

Nálægðin við náttúruna gefur Hildi mikið.

„Hér í fjörunni okkar eigum við til dæmis eitt tjaldapar sem kemur aftur og aftur á nákvæmlega sama staðinn og verpir. Ég fer út á hverjum morgni og spjalla við þau og skipa heimiliskrummanum að láta þau í friði. Selurinn kíkir líka oft í heimsókn.“

Kyrrðina hefur hún meðal annars nýtt til að setja saman ljóðabók með ljósmyndum sem hún segir væntanlega á næstu vikum.

„Það er eins og kyrrðin, orkan frá hafinu og fjörunum búi til tíma. Það myndast allt í einu tími til að skapa og framkvæma, eitthvað sem er mér mjög mikilvægt.“

Vilja að gott fólk taki við

Nú eru Melar komnir á sölu. Hildur telur sig hafa lokið því sem hún lagði upp með, að gera húsið upp og skapa eitthvað sem nýtist samfélaginu.

„Melar gistiheimili stendur nefnilega ekki eitt og sér. Allir sem koma hingað kíkja í verslunina okkar, sækja þjónustu á verkstæðinu og nýta sér það sem þorpið hefur upp á að bjóða. Ýmsir aðilar á svæðinu hafa einnig fengið vinnu við uppbygginguna.“

Hún er tilbúin að færa sig yfir í næsta kafla.

„Ég er núna tilbúin að halda áfram og leyfa yngra fólki að koma og halda áfram að byggja ofan á það sem við höfum skapað. Við erum samt ekkert að flýta okkur. Mikilvægast er að gott fólk taki við keflinu og haldi áfram.“

Þau langar að færa sig nær Akureyri, þar sem dóttir og sonur Hildar og fjögur barnabörn búa.

„Okkur Barry langar að halda áfram og skapa okkar sameiginlega draum. Við myndum gjarnan vilja taka að okkur útihús í nágrenni Akureyrar sem við gætum byggt upp og búið í. Hver veit hvert lífið leiðir okkur.“

Barry sér líka fyrir sér að gera upp gömul hús eða breyta útihúsi í heimili, hvort sem það yrði fyrir þau sjálf eða til að selja áfram.

„Fyrst af öllu er draumurinn að halda heilsu. Við höfum bæði gaman af alls kyns handverki, svo kannski getum við líka þróað það áfram og fundið staði til að selja það sem við búum til. Við sjáum hvað framtíðin ber í skauti sér. Ef við ættum nú bara kristalskúlu!“

Nýjast