Djúp lægð stefnir á landið á miðvikudag

Það mun blása vel á okkur ásamt því sem úrkoma verður  mikil n.k miðvikudag  Mynd Veðurstofa Íslands
Það mun blása vel á okkur ásamt því sem úrkoma verður mikil n.k miðvikudag Mynd Veðurstofa Íslands

Óli Þór Árnason veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir mjög djúpa lægð vera á leið til landsins. Gera spár ráð fyrir að loftþrýstingur í lægðinni verði kominn niður í 937 millibör þegar hún nálgast landið á miðvikudagsmorgun.  Útlit er fyrir að lægðin gangi á land skammt austan Mýrdalsjökuls og haldi þaðan til norðausturs.

,,'Það má búast má við rigningu um allt land þegar lægðin fer yfir austanvert landið. Vindhraði gæti náð 25 m/s þar sem hvassast verður og hviður farið vel yfir 40 m/s við fjöll þar sem slíkarvindhviður eru algengar. Þótt rigning verði á láglendi er jafnframt líklegt að snjói til fjalla.

Á norðanverðu landinu gæti byrjað að rigna fyrir hádegi. Seinni part miðvikudags fara skil lægðarinnar yfir norðausturhornið og ætti veður þá að ganga niður þar. Á norðvestanverðu landinu snýst vindur hins vegar til norðlægrar áttar og kólnar. Þá má búast við slyddu eða snjókomu niður undir sjávarmál, og er útlit fyrir að veðrið verði verst þar á miðvikudagskvöld" segir Óli Þór ennfremur.  

Óli Þór Árnason 

 Kólnar á Norðurlandi þegar skilin fara yfir

 Aðfaranótt fimmtudags færast skil lægðarinnar yfir Norðurland og síðar Norðausturland. Kólnar því heldur seinna þar en á norðvestanverðu landinu, þar sem slydda og snjókoma gætu náð niður að sjávarmáli fyrr.

Á fimmtudagsmorgun er síðan útlit fyrir að vindur lægi hratt og að stytt verði upp víðast hvar. Ekki er þó búist við að hlýni að ráði fyrr en á föstudag, svo snjórinn gæti setið áfram um tíma eftir að versta veðrið gengur yfir.

Að sögn Óla Þórs er búið að gefa út gular og appelsínugular veðurviðvaranir á stórum hluta landsins. Mikilvægt er að fylgjast vel með nýjustu spám og viðvörunum, enda getur breytt braut lægðarinnar haft í för með sér að veður versni eða batni á einstökum svæðum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna sérstaka aðgát og leggja ekki af stað á vanbúnum bílum við þessar aðstæður.

Ekki búist við miklum áhrifum á sjávarstöðu

Þótt svo djúp lægð geti haft áhrif til hækkunar sjávarborðs er ekki talið líklegt að sjávarstaða hafi veruleg áhrif á byggð að þessu sinni. Stórstreymi var í gær, sunnudag, og því er nú minnkandi straumur.

,,Þó þarf að hafa í huga að djúpur loftþrýstingur getur hækkað sjávarborð og því er ástæða til að fylgjast með aðstæðum þegar lægðin nálgast landið. Kvöldflóðið á miðvikudag verður nærri miðnætti á norðanverðu landinu" sagði Óli Þór Árnason veðurfræðingur. 

Nýjast