Það er í mörg horn að líta þegar stór sýning er sett á svið samhliða skólagöngu. Hjá leikfélaginu Píramus & Þispu hefur undirbúningur að uppsetningu Mean Girls þó líka orðið tilefni til nýrra kynna og vináttu. Hrefna Ósk Davíðsdóttir, sem fer með hlutverk Reginu George, segir hópinn hafa þést jafnt og þétt og nýja félaga þegar orðna mikilvægan hluta af starfinu. Glæný leikgerð verður frumsýnd í Samkomuhúsinu á Húsavík á miðvikudagskvöld klukkan 20.
„Stemningin er mjög góð og allir að standa sig mjög vel,“ segir Hrefna. Það eigi bæði við um þau sem standa á sviðinu og fólkið sem vinnur baksviðs. Margir hafi bæst í hópinn í haust, bæði nemendur á fyrsta ári og aðrir sem ekki hafi áður tekið þátt í sýningum P&Þ.
Að hennar mati er samveran einn skemmtilegasti hluti verkefnisins.
„Það skemmtilegasta er að fá að vera þarna öll saman og eignast nýja vini, kynnast fólki betur sem maður var ekkert endilega að spjalla mikið við áður. Þetta verkefni er búið að vera mjög skemmtilegt og búið að líða alltof hratt að mínu mati.“
Mikil vinna hefur farið í að laga svið og tæknibúnað að sýningunni. Þar þurfti að breyta umgjörðinni frá Rocky Horror og færa hana yfir í heim Mean Girls. Hrefna segir tæknina og sviðsmyndina hafa verið meðal stærstu áskorana í undirbúningnum, auk þess að samræma æfingar og skólanám.
Fjórir dagar fóru í tæknivinnu og á þeim síðasta var komin góð mynd á þann þátt sýningarinnar. Hrefna hrósar tæknimönnum hópsins, Karen Erludóttur leikstjóra og öðru hjálparfólki fyrir framlagið.
Sviðsmyndin kallaði einnig á talsverða vinnu. Kastalinn úr Rocky Horror þurfti að taka miklum breytingum og mikið var málað til að skapa nýja umgjörð. Helga Sveinbjörnsdóttir formaður LH og maður hennar, Heiðar Smári lögðu hópnum lið við þá vinnu, auk foreldra.
„Fyrir það erum við virkilega þakklát,“ segir Hrefna.
Karen leikstjóri hefur líka sett sterkan svip á efni sýningarinnar. Að sögn Hrefnu var ekki til handrit sem hópurinn gat notað við uppsetninguna og tók Karen því að sér að skrifa það. Hún valdi jafnframt lög, aðallega ensk lög frá aldamótunum, og samdi við þau nýja íslenska texta.
„Karen er alveg mögnuð í sínu starfi og er að standa sig mjög vel,“ segir Hrefna.
Sjálf tekst Hrefna á við Reginu George, leiðtoga stúlknahópsins The Plastics. Hún lýsir Reginu sem stórum og miklum karakter sem vilji ráða öllu og öllum.
Utan sviðsins er það hins vegar samvinnan sem einkennir hópinn. Hrefna segir leikfélagsstarfið gegna mikilvægu hlutverki í félagslífi skólans. Nemendur kynnist upp á nýtt og þau sem áður hafi varla heilsast séu nú orðin góðir vinir.
„Ég er rosalega stolt af þessum hóp því ef eitthvað kemur upp þá hjálpumst við að við að finna út úr því saman,“ segir Hrefna að lokum.
Frumsýning á miðvikudag n.k. klukkan 20:00