Síðastliðinn laugardag var hin árlega Sviðamessa Ferðafélags Akureyrar haldin í Ljósvetningabúð.
Þar voru sex einstaklingar sæmd gullmerki Ferðafélags Íslands. Öll ötulir félagsmenn Ferðafélags Akureyrar og hafa verið til margra ára.
Gullmerki FÍ er veitt þeim einstaklingum sem hafa með einum eða öðrum hætti unnið einstakt starf á vettvangi Ferðafélagi Íslands, á kjörsviðum þess og eftir stefnu og gildum.
Til hamingju Einar Hjartarson, Fjóla Kristín Helgadóttir, Grétar Grímsson, Haukur Ívarsson, Hjalti Jóhannesson og Ólöf Tryggvadóttir
Frá þessu segir á samfélagsmiðlum FA