Bíladagar

Dýrleif Skjóldal átti  Lokaorðið í blaðinu s.l. fimmtudag.

Lesa meira

Dagsektir vegna umgengni við Hamragerði 15 ekki greiddar

Dagsektir sem lagðar voru á lóðahafa við Hamragerði 15 á Akureyri vegna umgengni á lóðinni hafa ekki verið greiddar en þær eru í innheimtu. Fjárnám hefur verið gert í eigninni og nauðungarsala hefur verið auglýst. Bílum innan lóðar hefur fækkað lítilega að undanförnu.

Lesa meira

Jóhann Páll heiðursdoktor við HA

Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri veitir Jóhanni Páli Árnasyni heiðursdoktorsnafnbót á sviði félagsvísinda næstkomandi mánudag, 30. júní

Lesa meira

Sérstakt ef beita þarf sveitarfélag þvingunarúrræðum til að fá fram tiltekt

Akureyrarbær hefur ekki brugðist við kröfu frá Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra um að hreinsa svæði við á lóð bæjarins við Krossanes. Alls eru 45 bílar í slæmu ástandi á lóðinni.

Lesa meira

Hver borgar brúsann?

Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Efni frumvarpsins varðar svokallaða víxlverkun. Verði frumvarpið að lögum verður lífeyrissjóðum óheimilt að taka tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins við útreikning örorkulífeyris. Í reynd þýðir það að tvö aðskilin kerfi, þ.e. almannatryggingar annars vegar og lífeyrissjóðir hins vegar, greiða út bætur án samræmis eða gagnkvæmrar aðlögunar.

Lesa meira

Brotist inn á vinnusvæði á fjórum stöðum

Fyrr í þessum mánuði var brotist inn á vinnusvæði á fjórum stöðum á Akureyri og stolið þaðan miklu magni af alls konar verkfærum. Þessi mál eru í rannsókn hjá okkur en ekki hefur enn tekist að hafa hendur í hári þjófanna.

Lesa meira

Vonarbrú - Markvissari fjársöfnun til sveltandi fólks á Gaza

„Það bætast nýir félagar við daglega og fyrir það erum við afskaplega þakklát. Ætli við séum ekki orðin um 70 talsins og fer fjölgandi. Við þiggjum að sjálfsögðu frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og félaga með miklum þökkum, þau eru forsenda þess að við getum hjálpað áfram,“ segir Kristín S. Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur með sérmenntun í líknarhjúkrun, en hún hafði forgöngu um stofnun almannaheillafélagsins Vonarbrúar svo hægt væri að fara í markvissa fjársöfnun til frekari aðstoðar á Gaza svæðinu.

Lesa meira

Meira af rauðu hjörtunum í umferðarljósum

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri skrifar á Facebooksíðu sína í morgun og tekur af öll tvímæli með það að rauðu hjörtun fari ekki neitt. Miklar umræður hafa skapast í kjölfar frétta þess eðlis að Vegagerðin hafi sent bréf til skipulagsyfirvalda á Akureyri þar sem þess var farið á leit að umferðarljós Vegagerðarinnar á Akureyri verði færð í sitt upprunalega horft

Lesa meira

Vegagerðin vill ekki sjá rauð hjörtu í þeirra umferðarljósum

Á fundi skipulagsráðs Akureyrar í gær var tekið fyrir bréf sem ráðinu barst þann 11 júní s.l. frá Vegagerðinni þar sem þess er farið ákveðið leik við skipulagsyfirvöld að hjörtun verði fjarlægð úr umferðarljósunum sem Vegagerðin á.

Lesa meira

Hvatningastyrkur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Fimm hjúkrunarfræðingar fengu hvatningastyrk á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem haldinn var í Reykjavík þann 15. maí, ein þeirra var Elma Rún Ingvarsdóttir, sérfræðingur í barnahjúkrun á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Lesa meira

Tímabært að lækka fasteignaskatt

-segja fulltrúar S- og B-lista, en íbúar og fyrirtæki hafi tekið á sig miklar skattahækkanir í gegnum fasteignaskatt

Lesa meira

Samherji - Baldvin Þorsteinsson tekur við stýrinu

Baldvin Þorsteinsson hefur tekið við sem forstjóri Samherja hf. Þorsteinn Már Baldvinsson, faðir Baldvins, hefur látið af störfum eftir að hafa gegnt starfi forstjóra í 42 ár eða frá stofnun félagsins árið 1983.

Lesa meira

Styttri skóladagur og skráningardagar skila meiri ró og betri líðan í leikskólum

Ný rannsókn sýnir að gjaldfrjáls sex tíma leikskóli og skráningardagar hafa jákvæð áhrif á velferð barna og gæði leikskólastarfs á Akureyri og í Kópavogi.

Lesa meira

Björg EA 7 vígði endurbyggða Torfunefsbryggju á Akureyri

Endurbyggð Torfunefsbryggju  við Pollinn á Akureyri var í dag vígð við hátíðalega athöfn. Togari Samherja, Björg EA 7, lagðist að bryggjunni og vígði þar með hið nýja mannvirki.

Lesa meira

Heilabrot – Nýsköpun fyrir betra samfélag

Heilabrot - vinnustofa í nýsköpun á sviði heilbrigðis- og velferðarmála á Norðurlandi - fór fram í síðustu viku í samvinnu Drift EA og Háskólans á Akureyri. Markmið verkefnisins var að skapa vettvang þar sem unnið er að þverfaglegum lausnum á áskorunum sem samfélagið á Norðurlandi stendur frammi fyrir í heilbrigðis- og velferðarmálum. Áskoranirnar komu frá breiðum hópi stofnana og fyrirtækja sem sýndu verkefninu mikinn áhuga. Þá var aðsókn lausnarmiðaðra þátttakenda einnig mikil og ekki vantaði útsjónarsemina.

Lesa meira

Benedikt Barðason skipaður skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Benedikt Barðason í embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Lesa meira

Halldór Jón nýr skólameistari FSH

Halldór hefur starfað við skólann frá árinu 2017 sem aðstoðarskólameistari og áfangastjóri.

Lesa meira

Norðurþing og Björgunarsveitin Garðar efla samstarf

Með samningnum eru tengslin efld í því skyni að almannavarna- og æskulýðsstarf verði áfram þróttmikið

Lesa meira

Nýr áningarstaður í Hrísey – Lumar þu á nafni?

Ný gönguleið hefur verið tekin í notkun meðfram vesturströnd Hríseyjar. Á þeirri leið er gömul aflögð steypustöð sem nú hefur verið breytt í áningarstað. Áningarstaðurinn líkist einhvers konar ramma af húsi – þó það sé ekki hús í eiginlegri merkingu.

Lesa meira

Vilja nýta glatvarma til sniglaræktar

Sniglarækt hefur víða í Evrópu sannað sig sem vistvæn og arðbær búgrein með fjölbreyttum afurðum – allt frá lúxusmatvöru til hráefna í snyrtivöruiðnað. Nýnæmi verkefnisins felst í að aðlaga slíka ræktun að íslenskum aðstæðum með áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu og kolefnislágan rekstur.

Lesa meira

Laugardagur á Listasafninu á Akureyri

Laugardaginn 28. júní verður mikið um að vera á Listasafninu á Akureyri þar sem boðið verður upp á listamannaspjall við Þóru Sigurðardóttur kl. 15 undir stjórn Ann-Sofie N. Gremaud, en klukkan 14 sýnir Katrin Hahner gjörning í tengslum við þátttöku hennar í samsýningu norðlenskra listamanna, Mitt rými.

Lesa meira

Ertu ekki örugglega að fylgjast með?

Rauði krossinn á Íslandi hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi. Átakið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi (SFSÍ) og er því beint að öllu landinu.

Árlega drukkna yfir 300 þúsund manns í heiminum eða um 30 manneskjur á hverjum einasta klukkutíma. Á Íslandi drukknuðu 68 manns á tíu ára tímabili frá 2013-2023. „Drukknun er algengari en flestir halda og stundum er því talað um hinn þögla faraldur,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum.

Lesa meira

,,Þessi umbótavinna hefur verið mikil og krefjandi"

Í kjölfar ítarlegrar úttektar Embættis landlæknis á geðþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur verið ráðist í umfangsmiklar umbætur til að efla þjónustuna og bæta aðstæður fyrir bæði sjúklinga og starfsfólk. Markvisst hefur verið unnið að úrbótaáætlun með það að leiðarljósi að styrkja geðheilbrigðisþjónustu SAk.

Lesa meira

Akureyrarbær og Skátafélagið Klakkur undirrita viljayfirlýsingu

Akureyrarbær og Skátafélagið Klakkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um eflingu samstarfs, framtíðaruppbyggingu og gerð heildstæðs rekstrarsamnings um starfsemi félagsins.

Lesa meira

Listasumar hefst á morgun

Hátíðin hefst með Opnu húsi í Kaktus, þar sem haldið verður upp á Jónsmessu með tilraunakenndu og opnu DJ – VJ kvöldi, og Opnu húsi í Deiglunni

Lesa meira

Krílabær verður áfram í rekstri

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur tekið tillit til skoðana sem fram komu í athugasemdum sem sendar voru í kjölfar þess að til skoðunar var að loka leikskóladeildinni Krílabæ.

Lesa meira

SEIGLAN MIKILVÆGA

Eitt af því sem hefur reynst okkur Íslendingum vel í gegnum aldirnar, og í raun haldið lífi í landanum þegar verst áraði, er seiglan. Seigla í daglegu lífi er því eitt af því mikilvægasta sem við getum kennt börnum okkar.

Lesa meira