Ný rannsókn sýnir að gjaldfrjáls sex tíma leikskóli og skráningardagar hafa jákvæð áhrif á velferð barna og gæði leikskólastarfs á Akureyri og í Kópavogi.
Rannsóknin leiddi í ljós að þegar skólatími barna styttist eða fjölda barna á hverri deild er fækkað, eykst ró og jafnvægi í leikskólastarfinu. Þetta hefur skilað sér í fleiri gæðastundum í námi og leik, auk þess sem líðan barna og starfsfólks hefur batnað. Skólastjórnendur nefndu að breytingarnar hafi dregið úr álagi og streitu, og bætt bæði námstækifæri og samskipti.
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða reynslu skólastjórnenda og starfsfólks af breytingum á rekstrarfyrirkomulagi leikskóla, með áherslu á að meta hvernig sveitarfélögunum tveimur hefur gengið að ná þeim markmiðum sem stefnt var að með breytingunum. Sérstaklega var unnið með þann hluta niðurstaðna sem snýr að áhrifum breytinganna á skólastarfið og á velferð barna. Markmiðið var að kanna hvort breytingarnar - gjaldfrjáls sex tíma leikskóli og skráningardagar - hefðu áhrif á daglegt starf leikskólanna og líðan barnanna.
Samkvæmt rannsókninni er helsti ávinningur af breytingunum aukin velferð barna og bætt starfsumhverfi fyrir kennara og starfsfólk. Þegar skólatími barna styttist eða fjölda barna í hverjum hóp fækkaði, skapaðist rólegra og afslappaðra umhverfi í leikskólunum. Minni fjöldi barna í einu skapar fleiri tækifæri fyrir einstaklingsbundið nám og leik, sem styður við þroska þeirra. Börn finna fyrir meiri ró og öryggi þegar álag og áreiti minnkar, sem hefur jákvæð áhrif á líðan þeirra og vellíðan. Með betra skipulagi og minni álagi geta kennarar og starfsfólk sinnt vinnu sinni af meiri ánægju og fagmennsku. Þessar breytingar stuðla því að auknum gæðum í skólastarfi og bæta bæði námsumhverfið og félagslegan þroska barnanna.
Rannsóknin var unnin af Svövu Björgu Mörk, lektor í stefnu- og stjórnunarfræðum menntastofnana við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og Önnu Elísu Hreiðarsdóttur, lektor við kennaradeild Háskólans á Akureyri og framkvæmd í febrúar 2024. Rannsóknin byggði á rýniviðtölum við leikskólastjórnendur í 17 leikskólum – níu í Kópavogi og í öllum átta leikskólum sem sveitarfélagið rekur á Akureyri.
Hér er hlekkur á rannsóknina.
Frá þessu segir fyrst á heimasíðu Akureyrarbæjar.