Ný gönguleið hefur verið tekin í notkun meðfram vesturströnd Hríseyjar. Á þeirri leið er gömul aflögð steypustöð sem nú hefur verið breytt í áningarstað. Áningarstaðurinn líkist einhvers konar ramma af húsi – þó það sé ekki hús í eiginlegri merkingu.
Með því að endurnýta gömlu steypustöðina með þessum hætti er verið að mynda sjónrænan samhljóm við gamlar minjar, bæta ásýnd staðarins, skapar skemmtilegt myndefni og auka öryggi með því að draga úr fallhættu. Þar verður komið fyrir nestisbekk þar sem gestir geta notið útsýnisins og fengið góða hvíld í fallegu umhverfi.
Innsetningin er hönnuð af Einari Sigþórssyni, arkitekt hjá skipulagsdeild Akureyrarbæjar, en Stálsmiðjan Útrás ehf sá um smíðina.
Leitað er að nafni á þennan nýja áningarstað og öll áhugasöm eru hvött til að senda inn tillögur hér.
Áningarstaðurinn er hluti af nýrri 4,5 km langri hringleið sem liggur um vesturhluta Hríseyjar. Leiðin samanstendur af nýjum stíg meðfram ströndinni, auk eldri slóða og vegbúta sem fyrir eru. Þetta er eini göngustígurinn á þessum svæði og veitir margvíslega náttúruupplifun.
Á leiðinni má m.a. komast að fallegri sandströnd sem hentar vel til sjóbaða, auk þess sem oft er hægt að sjá bæði seli og fjölbreytt fuglalíf. Leiðin liggur einnig yfir flugvöllinn – sem er sjaldan notaður – og að fuglaskoðunarsvæðinu við Lambhagatjörn.
Gönguleiðin er aðgengileg og tiltölulega létt, þar sem lítill hæðarmunur er á henni. Hún hentar því fjölbreyttum hópum, allt frá göngu- og hjólafólki til sjósunds iðkenda auk fuglaáhugafólks.
Verkefnið hlaut 11 milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Með tilkomu gönguleiðarinnar og áningarstaðarins fjölgar útivistarmöguleikum í Hrísey, aðgengi batnar, upplifun gesta eykst og öryggi er aukið. Leiðin er hönnuð með það í huga að höfða til breiðs hóps útivistarfólks og efla tengingu milli náttúru og menningarminja eyjarinnar.