Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri skrifar á Facebooksíðu sína í morgun og tekur af öll tvímæli með það að rauðu hjörtun fari ekki neitt. Miklar umræður hafa skapast í kjölfar frétta þess eðlis að Vegagerðin hafi sent bréf til skipulagsyfirvalda á Akureyri þar sem þess var farið á leit að umferðarljós Vegagerðarinnar á Akureyri verði færð í sitt upprunalega horft
Ásthildur er mjög afdráttarlaus þegar hún skrifar á Facebooksíðu sína:
„Hjörtun í rauðu umferðarljósunum eru eitt af einkennismerkjum Akureyrar, stór þáttur í ímynd bæjarins sem segir á svo táknrænan og fallegan hátt að hér viljum við taka á móti öllum með hlýju og kærleika.
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Ef ég á að segja alveg eins og er, þá bara skil ég ekki hvað Vegagerðinni gengur til og er ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun. Þau voru sett í umferðarljósin sumarið 2008 þannig að Vegagerðin hefur haft 17 ár til að fjalla um „þá ógn“ sem af þeim stafar!
Kæra fólk, reynum nú að brosa með hjartanu og notum tímann í eitthvað þarfara en að vera með leiðindi út í hjörtun okkar!“