Mynd/SAk.
Í kjölfar ítarlegrar úttektar Embættis landlæknis á geðþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur verið ráðist í umfangsmiklar umbætur til að efla þjónustuna og bæta aðstæður fyrir bæði sjúklinga og starfsfólk. Markvisst hefur verið unnið að úrbótaáætlun með það að leiðarljósi að styrkja geðheilbrigðisþjónustu SAk. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk.
Gæðastarf og fagmennska í forgrunni
Stöðugleiki í mönnun hefur verið lykiláhersla síðustu mánaða. Tveir nýir sérfræðilæknar hafa verið ráðnir. Þá hefur stjórnendateymi geðþjónustunnar verið styrkt með ráðningu deildarstjóra, aðstoðardeildarstjóra á dag- og göngudeild og áframhaldandi faglegrar forystu yfirlæknis.
Húsnæði tekið til gagngerrar endurskoðunar
Nýverið lauk umfangsmiklum endurbótum á legudeild sem bætt hafa aðbúnað og öryggi. Áform eru uppi um nýbyggingu geðsviðs sem mun sameina legu-, dag- og göngudeild á einum stað – með nútímalegum og notendamiðuðum lausnum. Áætlað er að nýtt húsnæði verði tekið í notkun árið 2028.
„Mikill munur er á umhverfi sjúklinga og vinnuaðstöðu starfsfólks til hins betra eftir umbæturnar á legudeildinni. Umhverfi er hlýlegra sem hefur áhrif á líðan sjúklinga inni á deild og jafnframt er betur hægt að tryggja öryggi sjúklinga. Þá hefur betri vinnuaðstaða leitt til aukinnar starfsánægju og afkastagetu starfsfólks sem hefur jákvæð áhrif á þá meðferð sem veitt er,“ segir Bergþóra H. Bergþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur á legudeild geðdeildar.
Breytingar með notandann í öndvegi
Markmið allra umbóta er að bæta aðgengi, samfellu og gæði þjónustunnar – með notandann í brennidepli. „Þessi umbótavinna hefur verið mikil og krefjandi en einnig gefið starfsmannahópnum langþráð svigrúm til að vinna að faglegum framförum í þjónustunni og fylgja þeirri vinnu eftir, með hag notenda að leiðarljósi,“ segir Valdís Eyja Pálsdóttir, sálfræðingur göngudeildar geðdeildar.
Geðþjónusta SAk gegnir mikilvægu hlutverki á landsbyggðunum og þjónustar íbúa Norður- og Austurlands. Með áframhaldandi umbótum og markvissri uppbyggingu er unnið að því að tryggja örugga, samfellda og faglega þjónustu – sem stenst kröfur nútímans og væntingar notenda.