Akureyrarbær og Skátafélagið Klakkur undirrita viljayfirlýsingu

Viljayfirlýsingin var undirrituð af Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra Akureyrarbæjar, og Jóhanni Ma…
Viljayfirlýsingin var undirrituð af Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra Akureyrarbæjar, og Jóhanni Malmquist, fulltrúa úr stjórn Skátafélagsins Klakks. Mynd/Akureyri.is

Akureyrarbær og Skátafélagið Klakkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um eflingu samstarfs, framtíðaruppbyggingu og gerð heildstæðs rekstrarsamnings um starfsemi félagsins.

Undanfarin ár hefur Skátafélagið Klakkur haft aðsetur í kjallara Þórunnarstrætis 99 sem nú er nauðsynlegt að nota til stækkunar og bættrar aðstöðu Brekkukots, sem er skammtímaþjónusta fyrir fötluð börn.

Markmið yfirlýsingarinnar er að mæta þeirri brýnu þörf, sem og að skapa traustan samningsgrundvöll og tryggja framtíðaraðstöðu fyrir félagsstarf skátanna á Hömrum.

Með þessari viljayfirlýsingu staðfestir Skátafélagið Klakkur að félagsaðstaða þess flytji á 1. hæð Rósenborgar fyrir 15. október 2025.

Viljayfirlýsingin var undirrituð af Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra Akureyrarbæjar, og Jóhanni Malmquist, fulltrúa úr stjórn Skátafélagsins Klakks.

Áætlað er að nýr rekstrarsamningur milli Akureyrarbæjar og Skátafélagsins Klakks verði undirritaður 1. október 2025.

Nýjast