Dagsektir sem lagðar voru á lóðahafa við Hamragerði 15 á Akureyri vegna umgengni á lóðinni hafa ekki verið greiddar en þær eru í innheimtu. Fjárnám hefur verið gert í eigninni og nauðungarsala hefur verið auglýst. Bílum innan lóðar hefur fækkað lítilega að undanförnu.
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur frá hausti 2023 haft til meðferðar mál er varðar ófullnægjandi ástand og umgengni á lóðinni að Hamragerði 15. Ítekað hefur það verið tekið fyrir í nefndinni og öllum lögboðnum málsmeðferðarreglum verið fylgt.
Langt og svifaseint innheimtuferli
Harmar nefndin þá stöðu sem málið er komið í og bendir á að auðveldlega hefði mátt komast hjá löngu, svifaseinu og kostnaðarsömu innheimtuferli með því að bregðast við réttmætum og rökstuddum kröfum um tiltekt á lóðinni. Nefndin ítrekar að dagsektum verður áfram beitt þar til fullnægjandi úrbætur hafa verið gerðar.