Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að fela sviðsstjóra fjársýslusviðs að reikna út sviðsmyndir af lækkun á fasteignaskatti.
Félag atvinnurekenda hefur skorað á sveitarfélög landsins að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði og halda þannig sköttum á atvinnuhúsnæði óbreyttum á milli ára. Jafnframt hvetur félagið til uppbyggilegs samtals sveitarfélaganna og ríkisvaldsins um breytt kerfi skattlagningar fasteigna með minni sveiflur og meiri fyrirsjáanleika að markmiði. Erindi félagsins var vísað til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2026 til 2029.
„Líkt og ég hef áður bent á er tímabært að lækka fasteignaskatta á íbúa og atvinnulíf á Akureyri,“ segir í bókun Hildu Jönu Gísladóttur S-lista. Telur hún ekki ástæðu til að bíða eftir fjárhagsáætlunargerð næsta árs til að taka af skarið og lækka þá skatta, t.a.m. um 1-2 punkta.
Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista bendir í bókun á að fasteignamat hafi hækkað verulega á Akureyri frá árinu 2022, eða um 60% Fyrir árið 2026 sé hækkun 10,6% fyrir íbúðarhúsnæði og 7,9% fyrir atvinnuhúsnæði. Álagningarprósenta hafi aðeins einu sinni lækkað á yfirstandandi kjörtímabili, þá lítilega fyrir íbúðarhúsnæði en ekkert fyrir atvinnuhúsnæði. „Þetta hefur orðið til þess að íbúar og fyrirtæki hafa tekið á sig miklar skattahækkanir í gegnum fasteignaskatt,“ segir hún. Leggja bæjarfulltrúar B-lista til að prósentan verði lækkuð bæði á íbúðar- og atvinnuhúsnæði þannig að tryggt sé að íbúar og fyrirtæki taki ekki á sig hærri eignaskatt milli ára.