Vegagerðin vill ekki sjá rauð hjörtu í þeirra umferðarljósum

Eru rauðu hjörtun slysahætta?     Mynd  Vbl.
Eru rauðu hjörtun slysahætta? Mynd Vbl.

Á fundi skipulagsráðs Akureyrar í gær var tekið fyrir bréf sem ráðinu barst þann 11 júní s.l. frá Vegagerðinni þar sem þess er farið ákveðið leik við skipulagsyfirvöld að hjörtun verði fjarlægð úr umferðarljósunum sem Vegagerðin á.

 

Orðrétt segir ,, Vegagerðinni hafa borist ábendingar um að hjörtu í umferðarljósum á Akureyri ógni umferðaröryggi. Málið hefur verið tekið til skoðunar innanhúss hjá Vegagerðinni og ljóst er að hjartalöguð umferðarljós standast hvorki kröfur um umferðarmerki né umferðaröryggi. Af öryggisástæðum og til að fyrirbyggja hugsanleg slys fer Vegagerðin því fram á að hjörtun verði fjarlægð úr umferðarljósum sem henni tilheyra.“

Málinu er fylgt eftir með frekari texta sem hér má lesa. ,, Hér að neðan er vísun í reglur og umferðaröryggisatriði málinu til stuðnings. Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra 250/2024 Í 42. gr. reglugerðarinnar segir í kafla 1180 Almenn umferðarljós: Almenn umferðarljós eru ljósmerki með hringlaga ljósopum fyrir rautt, gult og grænt ljós. Í 2. gr. viðauka III með reglugerðinni segir í kafla 1180 Almenn umferðarljós: Ljósker skulu vera með ljósop sem er 200 mm að þvermáli. Hjartalaga rautt ljós uppfyllir ekki kröfur reglugerðar um umferðarmerki og notkun þeirra.

Umferðaröryggi Rauðu hjörtun í umferðarljósum á Akureyri eru vinsælt myndefni ferðamanna. Oft má sjá ferðamenn á miðeyjum fjölfarinna vegamóta taka myndir og sjálfur. Við aðstæður sem þessar geta skapast hættur ef t.d. fólki skrikar fótur og lendir fyrir bíl.

Einnig er hætta á því að hjartalaga umferðarljós dragi athygli ökumanna frá akstri, en það er sérstaklega varhugarvert á fjölförnum vegamótum.“

Skipulagsráð frestaði afgreiðslu málsins og það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu málsins.

Nýjast