Laugardaginn 28. júní verður mikið um að vera á Listasafninu á Akureyri þar sem boðið verður upp á listamannaspjall við Þóru Sigurðardóttur kl. 15 undir stjórn Ann-Sofie N. Gremaud, en klukkan 14 sýnir Katrin Hahner gjörning í tengslum við þátttöku hennar í samsýningu norðlenskra listamanna, Mitt rými.
Sýning Þóru Sigurðardóttur var opnuð 17. maí síðastliðinn og hefur hlotið afar góðar viðtökur, en listgagnrýnandi Morgunblaðsins gaf sýningunni til að mynda hæstu einkunn. Á sýningu Þóru má sjá ný verk sem eiga rætur sínar í áratugalöngum áhuga hennar á efni, rými og teikningu. Líkaminn, næmi hans, efni, staða og hreyfing eru mikilvæg viðfangsefni listakonunnar. Í verkunum beinist athyglin að náttúruumhverfi lífverunnar: kalki, kolum, málmum, lífrænum himnum, trefjum og úrgangi.
Þóra Sigurðardóttir fæddist og ólst upp á Akureyri. Hún lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981 og framhaldsnámi við Det Jyske Kunstakademi í Danmörku 1991. Hún hefur sýnt víða á Íslandi og erlendis og m.a. hélt hún einkasýningu í Listasafni Íslands 2024. Verk Þóru eru í eigu opinberra safna og einkasafna hérlendis og erlendis, s.s. Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins, Listasafns Reykjavíkur, BBK Print Collection í Berlín og Metropolitan Museum of Art Paper/Print Collection í New York.
Listasafnið á Akureyri auglýsti fyrr á árinu eftir umsóknum um þátttöku í samsýningu norðlenskra listamanna og er gjörningur Katrin Hahner framinn í tengslum við þátttöku hennar í sýningunni. Alls voru verk eftir sautján listamenn valin á sýninguna og er henni ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar.
Þátttakendur eru Arthur Ragnarsson, Brynja Baldursdóttir, Egill Logi Jónasson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Helga Ósk Einarsdóttir, Hlynur Hallsson, Inga Lísa Middleton, Íris Eggertsdóttir, Karl Guðmundsson | Rósa Júlíusdóttir, Katrin Hahner, Kristján Helgason, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Sunna Svavarsdóttir og Tereza Kocianova.
Katrin Hahner er mynd- og hljóðlistamaður sem býr bæði á Íslandi og í Þýskalandi. Hún lauk MA gráðu frá Staatliche Akademie der bildenden Künste Stuttgart 2006 og Kunsthochschule Berlin Weissensse 2008.
Katrin Hahner
Innsetning Hahner inniheldur tjaldstrúktúr sem bíður upp á vernd og nánd, hringlaga verk úr handgerðum leirmunum og vídeó-skrásetningu af sorgar-ritúali, sem virðingarvottur við nýtt tilverustig.
Titill vídeóverksins Hypercycle Jazz vísar til kenningar Manfred Eigens um hypercycle; hugmyndar um sjálfbærar hringrásir samtengdra ferla, þar sem hver þeirra virkar hvetjandi á þá næstu. Þessari jákvæðu hringrás endurgjafar mætti líkja við kærleika til manneskju sem er látin. Að tengja þetta fyrirbæri við jazz-spuna gefur til kynna leið til að skilja framtíðarhegðun og ólínulegt hreyfiafl, sem og órofið samhengi forfeðranna og skyldleika við allar lifandi verur.