Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri veitir Jóhanni Páli Árnasyni heiðursdoktorsnafnbót á sviði félagsvísinda næstkomandi mánudag, 30. júní
Jóhann Páll Árnason, prófessor emeritus við La Trobe háskóla, er einhver allra merkasti kenningasmiður Íslendinga fyrr og síðar á sviði hug- og félagsvísinda. Verk hans hafa markað djúp spor í hinum alþjóðlega fræðaheimi .
Jóhann lauk stúdentsprófi árið 1958 frá MA og hélt þá til Prag þar sem hann stundaði nám í heimspeki og sagnfræði við Karls-háskólann frá 1960 til 1966. Hann kenndi við MA frá 1967 til1968 og nam heimspeki og félagsfræði við Háskólann í Frankfurt frá 1968 til 1970. Þaðan lauk hann doktorsprófi í heimspeki 1970 og skrifaði doktorsritgerð undir handleiðslu hins þekkta félagsheimspekings Jürgens Habermas.
Málþing og formleg athöfn öllum opin
Í tilefni af veitingu heiðursdoktorsnafnbótarinnar 30. júní verður sama dag haldið málþing við Háskólann á Akureyri undir yfirskriftinni „Austur, vestur og aftur heim: Söguleg félagsfræði Jóhanns Páls Árnasonar“. Málþingið fer fram milli kl. 13.00 og 15.30 þar sem fræðimenn munu fjalla um og eiga orðastað við Jóhann um mikilsvert framlag hans til fræðanna. Í framhaldi af málþinginu fer fram formleg athöfn þar sem Jóhanni verður veitt heiðursdoktorsnafnbót og hefst hún kl. 16.00.