Vilja nýta glatvarma til sniglaræktar

Mynd/iStock photos.
Mynd/iStock photos.

Eimur hefur hlotið styrk úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir nýtt tilraunaverkefni sem miðar að því að innleiða sniglarækt sem sjálfbæra aukabúgrein á íslenskum sveitabæjum. Nýttur verður glatvarmi úr hitaveitukerfum og verðmæti sköpuð úr vannýttum hliðarstraumum. Greint er frá þessu á heimasíðu Eims.

 

Sniglarækt hefur víða í Evrópu sannað sig sem vistvæn og arðbær búgrein með fjölbreyttum afurðum – allt frá lúxusmatvöru til hráefna í snyrtivöruiðnað. Nýnæmi verkefnisins felst í að aðlaga slíka ræktun að íslenskum aðstæðum með áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu og kolefnislágan rekstur.

Verkefnið er þróað í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) og írsku sniglaræktina Inis Escargot.

Á árinu 2025 verður lögð sérstök áhersla á fræðslu og vitundarvakningu:

  • Haldnir verða fundir á Norðurlandi með írskum sérfræðingi um tækifærin í sniglarækt með nýtingu glatvarma;
  • Skipulagt staðnám fyrir bændur og aðra áhugasama aðila ásamt fulltrúum stuðningsumhverfis landbúnaðar og nýsköpunar á Norðurlandi á sniglabýli á Írlandi snemma árs 2026;
  • Gefin út skýrsla um niðurstöður verkefnisins með það að markmiði að styðja áframhaldandi þróun greinarinnar hérlendis.
Verkefnið tengist beint fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna:
  • Góð atvinna og hagvöxtur
  • Ábyrg neysla og framleiðsla
  • Nýsköpun og uppbygging
  • Aðgerðir í loftslagsmálum
Eimur leggur sérstaka áherslu á að styðja við nýsköpun í dreifbýli og virkja staðbundnar auðlindir til að styðja sjálfbæra verðmætasköpun. Verkefnið er viðleitni til þess að virkja nýja krafta á grunni staðbundinnar sérstöðu og alþjóðlegrar þekkingar.
 

Nýjast