Krílabær verður áfram í rekstri

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur tekið tillit til skoðana sem fram komu í athugasemdum sem sendar voru í kjölfar þess að til skoðunar var að loka leikskóladeildinni Krílabæ. Kennarafélag Framhaldsskólans á Laugum og foreldar barna á deildinni voru á meðal þeirra sem sendu inn athugasemdir.

Oddviti, sveitarstjóri og sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynntu áform um að loka deildinni næsta haust fyrir starfsmönnum og foreldrum barna á Krílabæ. Þau áform voru gagnrýnd og í kjölfarið bárust athugasemdir. Fræðslu- og velferðarnefnd beindi því til sveitarstjórnar að taka mið af þeim athugasemdum og formfesta ekki áform sín um lokun leikskóladeildarinnar.
Sveitarstjórn hefur ákveðið að taka tillit til málefnalegra sjónarmiða sem fram komu og mun halda leikskólastarfi áfram í Krílabæ.

Leikskólinn Krílabær hóf starfsemi sína haustið 1988, fyrst í sumarhúsi á Einarsstöðum síðan í fyrrum húsnæði Húsmæðraskólans á Laugum, þá í Grunnskólanum en starfsemin var flutt í Litlulaugaskóla fyrir fáum árum.

Nýjast