Akureyrarbær hefur ekki brugðist við kröfu frá Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra um að hreinsa svæði við á lóð bæjarins við Krossanes. Alls eru 45 bílar í slæmu ástandi á lóðinni.
Gerð krafa um að svæðið yrði hreinsað fyrir 1. júní síðastliðinn en ekki var brugðist við. Síðar var samþykkt að gefa lokafrest til 25. júní nk. til að hreinsa lóðina. Nefndin hefur bent á þá augljósu slysa- og mengunarhættu sem stafar af bifreiðunum, auk þess sem þær væru mikið lýti á umhverfinu.
Vona og trúi að brugðist verði við
„Ég vona og trúi því að bærinn bregðist við þessari sjálfsögðu kröfu um tiltekt, það yrði sérstakt ef beita þarf sveitarfélag þvingunarúrræðum til að fá fram tiltekt,“ segir Leifur Þorkelsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
Nefndin segir það vekja furðu að ekki sé brugðist við og bendir á bókun bæjarráðs frá því í lok apríl þar sem ráðið lagði þunga áherslu á að farið verði í að fjarlægja bifreiðar af lóð Akureyrarbæjar í Krossanesi og að því verði lokið sem allra fyrst.
Heilbrigðisnefnd ítrekar kröfu sína um að lóð Akureyrarbæjar í Krossanesi verði hreinsuð án frekari tafa. Verði ekki brugðist við innan þess frests mun heilbrigðisnefnd íhuga að beita þvingunarúrræðum, til að knýja fram úrbætur.