Heilabrot - vinnustofa í nýsköpun á sviði heilbrigðis- og velferðarmála á Norðurlandi - fór fram í síðustu viku í samvinnu Drift EA og Háskólans á Akureyri. Markmið verkefnisins var að skapa vettvang þar sem unnið er að þverfaglegum lausnum á áskorunum sem samfélagið á Norðurlandi stendur frammi fyrir í heilbrigðis- og velferðarmálum. Áskoranirnar komu frá breiðum hópi stofnana og fyrirtækja sem sýndu verkefninu mikinn áhuga. Þá var aðsókn lausnarmiðaðra þátttakenda einnig mikil og ekki vantaði útsjónarsemina.
Öflug þátttaka og samvinna
Heilabrot fékk góðan meðbyr og fjölmargir aðilar komu að verkefninu sem samstarfs- og bakhjarlar. Þetta voru Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk), Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Læknastofur Akureyrar, Heilsuvernd, Veltek, SSNE, Þula, Pharmartica, Arctic Therapeutics og Embætti landlæknis.
Alls tóku 27 þátttakendur þátt í vinnustofunni. Þeir hófu daginn á að kortleggja raunverulegar áskoranir innan heilbrigðis- og velferðargeirans og skiptu sér í fimm þverfagleg teymi sem völdu sér áskorun til að vinna með. Hóparnir unnu svo allan daginn að þróun lausna sem þeir kynntu fyrir dómnefnd í lok dags.
Markviss og skapandi nálgun
Ferlið var vel skipulagt undir stjórn Svövu Bjarkar Ólafsdóttur, verkefnastjóra frumkvöðla og nýsköpunnar við HA og Sesselju Ingibjargar Barðdal Reynisdóttur, framkvæmdastýru Drift sem leiddu þátttakendur í gegnum hnitmiðað nýsköpunarferli. Þátttakendur fengu innsýn í áskoranir, unnu hugmyndavinnu með hugarflugi og fengu þjálfun í kynningartækni áður en þeir kynntu hugmyndirnar fyrir dómnefnd.
„Heilabrot var bæði þarft, gagnlegt og skemmtilegt ferli og það var svo gaman að sjá ólíka hópa koma að borðinu til að taka þátt í skapandi samvinnu, allir með það sameiginlega markmið að bæta heilbrigðisþjónustu og velferð í okkar samfélagi,“ segir Inga Berglind Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar.
Verðlaun og framtíðin
Veitt voru verðlaun fyrir bestu hugmyndina og að þessu sinni var það hópur sem kallaði sig Taktur. Þau kynntu hugmynd um tengslamyndunarapp fyrir fólk sem upplifir einmanaleika og félagslega einangrun. Markmiðið með appinu er að auka lífsgæði fólks með því að minnka einmanaleika og byggja sterkari samfélög. Hópurinn fékk gjafabréf í Skógarböðin, aðild að Messanum og merktan taupoka með merki Driftarar sem þakklætisvott fyrir vinnuna.
„Heilabrot er fyrsta skrefið af röð sem við ætlum að setja í loftið reglulega hér í Drift í öflugu samstarfi við HA. Það er okkur hjartans mál að tengja saman fleiri geira samfélagsins við ólíka aðila, hugmyndir og krafta. Markmiðið er að halda áfram að skapa rými fyrir þverfaglega nýsköpun með samfélagslegum tilgangi,” segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Drift.