Kínverski sendiherrann á Íslandi, He Rulong, heimsótti Þingeyjarsveit fyrir skömmu ásamt föruneyti. Tilefni ferðarinnar var að skoða norðurslóðarannsóknarstöðina Arctic Observatory á Kárhóli. „Í leiðinni óskaði sendiherrann eftir að hitta fulltrúa sveitarstjórnar og nærsamfélagsins til þess að ræða hvaða sýn heimafólk hefði á starfsemina, en framtíðarsýnin er að opna gestastofu í húsinu,“ segir Arnór Benónýsson sveitarstjórnarfulltrúi, en hann, Margrét Hólm Valsdóttir og Knútur Emil Jónasson áttu fund með hópnum.
Árlega heimsækir Slökkvilið Akureyrar elstu börnin í leikskólunum á Eyjafjarðarsvæðinu til þess að fræða börnin um eldvarnir. Í heimsóknunum nýtur Slökkviliðið aðstoðar Björnis brunabangsa sem er ættaður frá Noregi . Börnin fá fræðslu um eldvarnir og fá að kynnast starfi slökkviliðsmanna og búnaðinum sem þeir nota í starfi sínu. Í heimsóknunum á leikskólana fá börnin bók um Björnis brunabangsa, en í henni eru meðal annars þrautir, verkefni og fræðsla um eldvarnir.
Heilsuleikskólinn Álfasteinn og Þelamerkurskóli hlutu á dögunum viðurkenningu Landverndar fyrir öflugt umhverfisstarf þegar Grænfáninn var afhentur skólunum við hátíðlega athöfn.
Komandi þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið er eitt stærsta pólitíska álitaefni sem Alþingi hefur tekist á við um langt skeið. Atkvæðagreiðslan snýst ekki aðeins um stjórnmál eða aukið alþjóðasamstarf heldur um framtíðarsýn þjóðarinnar, fullveldi Íslands og hvernig við viljum að ákvarðanir um landið okkar séu teknar til framtíðar.