Dómsmálaráðherra hefur nú sett breytingar á kosningakerfinu á dagskrá. Tillögur starfshóps ráðherra, sem birtar voru í gær, miða að því að hvert atkvæði vegi sem jafnast, óháð búsetu. Það er mikilvægt lýðræðislegt markmið og ég ber virðingu fyrir því fræðafólki sem sat í starfshópnum. En þegar við breytum kosningakerfinu erum við ekki aðeins að ákveða hvernig atkvæði eru talin. Við erum líka að móta hvernig ólíkir landshlutar tengjast löggjafarvaldinu og hvernig pólitískt vald dreifist um landið og um leið þá hvernig ólíkir landshlutar upplifa inn hlut í stjórnarháttum og stjórnsýslu.
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur samþykkt tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri og aðilarnir gert með sér samning um verkefnið. Tilkynnt var í júní fyrr á þessu ári að FSRE hefði metið tilboð Reita hagstæðast með tilliti til verðs og afhendingartíma. Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.
Orkuveita Húsavíkur vinnur að kostnaðar- og tæknimati vegna mögulegrar uppbyggingar tveggja eða þriggja þrepa hreinsistöðvar við fráveituútrás í Þorvaldsstaðargili, við sláturhús Norðlenska sunnan Húsavíkur. Niðurstaðan mun ráða því hvort framkvæmdin verður sett á framkvæmdaáætlun ársins 2027 eða 2028.
Bæjarstjórn Akureyrar telur að ýmis jákvæð atriði sé að finna í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027, en kallar jafnframt eftir auknu fjármagni til verkefna sem sveitarfélög bera ábyrgð á. Þetta kom til umræðu á fundi bæjarstjórnar s.l. þriðjudag.
Leikjadjamm verður haldið á Húsavík dagana 18. og 19. september þar sem þátttakendur fá tækifæri til að þróa eigin leik frá grunni. Engin reynsla af leikjagerð eða forritun er nauðsynleg og leikurinn þarf alls ekki að vera tölvuleikur.
Að sögn Stefá...
Eins og fram hefur komið lá fyrir í gær niðurstaða Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um starfsleyfi fiskþurrkunar Samherja á Laugum. Í úrskurðinum kemur fram að felld sé úr gildi ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 3. júní 2026 um að gefa út starfsleyfi til Samherja Íslandi ehf. fyrir heitloftsþurrkun fiskafurða á lóð Austurhlíðarvegar 2 á Laugum.
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Þingeyjarsveitar skrifar um málið á heimasíðu sveitarfélagsins,.