Fjöldi stórra verkefna í farvatninu
„Það hefur verið ágætt að gera hjá iðnaðarmönnum undanfarin misseri og vonir standa til að svo verði áfram,“ segir Sigmundur Kr. Magnússon þjónustufulltrúi hjá Byggiðn á Akureyri. Mikið hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði og þá eru nokkur stór verkefni á vegum hins opinbera í farvatninu á næstunni.