Freyvangsleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikverk 9. október næstkomandi og verða sýningar eingöngu í október. Verkið heitir Útsynningur og er gamanleikur eftir Hjálmar Arinbjarnarson í leikstjórn Jóhönnu S. Ingólfsdóttur.
Fjölgun bílastæða við Sunnuhlíð 12 á Akureyri þar sem m.a. heilsugæslustöð Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, HSN er til húsa var til umfjöllunar á fundi skipulagsráðs nýverið.
Sjúkraþjálfararnir Hannes Bjarni Hannesson og Þórhallur Guðmundsson, betur þekktur sem Tóti, hafa vakið athygli með uppistandshópnum Heimamönnum á Akureyri. Eftir þrjár vel sóttar sýningar þar liggur leiðin nú til Húsavíkur með glænýtt efni í farteskinu
Ég sit með kaffibollann á fallegum degi og dáist að drifhvítu sængurfötunum sem blakta í golunni. Ég hlakka til að skríða upp í rúm í kvöld. Fátt er að betra en að leggjast til hvíldar í frískandi sængurfötum. Þvotturinn á snúrunni færir mig í annan og betri heim.
„Við erum afskaplega þakklát fyrir þennan dag. Það komu fjölmargir og veðrið lék við okkur,“ segir Hjörtur Narfason framkvæmdastjóri Malar og sands. Fyrirtækið átti 80 ára afmæli fyrr á árinu og fagnaði þeim áfanga síðasta laugardag 12 september. Steypuframleiðsla fyrirtækisins hefur verið flutt frá Súluvegi og að Sjafnarnesi á liðnu sumri, þannig að tilefni til að bjóða fólki að skoða var ærið. „Þetta tókst mjög vel og allir voru ánægðir. Við hengdum upp gamlar myndir og þær vöktu mikla lukku.“