Bókarkynning Skemmtilegar sögur frá Akureyri fyrri tíma í nýrri bók Sigmundar Ernis
Sigmundur Ernir Rúnarsson kynnir bókina BARNABÓK á Amtsbókasafninu í dag, 26. nóvember, klukkan 17. Þar dregur hann upp skemmtilega og forvitnilega mynd af lífinu á Akureyri á sjöunda áratug síðustu aldar, þegar nægjusemi, nýtni og útsjónarsemi voru meðal helstu dyggða fólks.