Starfsfólk Norðurorku tók þátt í Treyjudeginum í dag og mætti í sínum uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn með krabbamein í hverjum mánuði og styrktarfélagið Börn með krabbamein styður við þau og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti.
Félagið stendur fyrir Treyjudeginum og á vefsíðu verkefnisins treyjudagur.is er að finna upplýsingar um starf félagsins og hægt að styrkja það með fjárframlagi.