-
mánudagur, 04. desember
Komin er út bókin Fornihvammur í Norðurárdal
Fornihvammur er í Mýrasýslu í sveitarfélaginu Borgarbyggð. Það sýnir mikilvægi leiðarinnar yfir Holtavörðuheiði að fyrsta verkefni Fjallvegafélagsins var að gangast fyrir byggingu sæluhúss á þessum stað árið 1831, og einnig að leiðin um Holtavörðuheiði væri vörðuð. Fornihvammur var eyðibýli þegar sæluhúsið er reist, en reis aftur 1845 og þar var samfelld mannvist til 1977. -
mánudagur, 04. desember
Hvert er sveitarfélagið að stefna?
Sveitarfélög landsins eru að ljúka fjárhagsáætlanagerð þessa dagana í ástandi sem einkennist af háum vöxtum, verðbólgu og óvissutímum á vinnumarkaði. Hvert er þá hlutverk sveitarfélaganna? Sýnum aðhald og ábyrgð Til að ná niður verðbólgunni þurfa allir að leggja lóð sitt á vogarskálarnar. Sveitarfélög þurfa að sýna aðhald, varkárni í gjaldskrárhækkunum og álögum á íbúa og fyrirtæki, varast þenslu í framkvæmdum og um leið verja heimilin fyrir gríðarlegum hækkunum. Auðvitað hafa sveitarfélögin, rétt eins og heimilin, fundið fyrir bæði verðbólgu og vaxtahækkunum. Tekjur þeirra hafa hins vegar á sama tíma aukist töluvert í gegnum útsvar. Hvað gerir Akureyrarbær? Fjárhagsáætlun Akureyrar er um margt athyglisverð. Við erum að sjá miklar hækkanir á gjaldskrám, eða 9% að jafnaði. Þá leggur meirihlutinn til óbreytta fasteignaskattsprósentu, þrátt fyrir 22.1% hækkun á fasteignamati milli ára. Ekki á að sýna aðhald eða gefa eftir í framkvæmdum. Þvert á móti er stefnt á lántöku vegna nýrra fjárfestinga upp á rúman milljarð í A-hluta og það í háu vaxtaumhverfi. Þrátt fyrir mikil uppbyggingaráform er ekki verið að vinna að því með sama krafti að taka á móti nýjum íbúum, og þannig auka tekjur sveitarfélagsins til lengri tíma litið. Sem dæmi á að draga úr fjárveitingum til nýbyggingu gatna um 5.5% þrátt fyrir þá staðreynd að nú þegar hefur orðið mikil seinkun á að fyrstu lóðir í Móahverfi verði byggingarhæfar. Í núverandi vaxtaumhverfi munu verktakar eðlilega halda að sér höndum en sveitarfélögin mega samt ekki tefja fyrir íbúðauppbyggingu. Ef þau gera það, þá mun það aðeins valda áframhaldandi spennu á íbúðamarkaði þegar vextir taka að lækka og byggingarfyrirtækin fara að hugsa sér til hreyfings að nýju. Hættan er að við sitjum aftur uppi með lóðaskort á Akureyri og verðum af uppgangi og hagvexti fyrir okkar sveitarfélag. Það má ekki gerast, við höfum ákveðnum skyldum að gegna þegar kemur að húsnæðisuppbyggingu í landinu og full ástæða til að sýna stórhug í þeim efnum. Ekki tekin afstaða til fjármagns í nýja atvinnustefnu Að endingu finnst okkur bæjarfulltrúum Framsóknar miður að ekki hafi verið tekin afstaða til tillögu okkar þess efnis að sett yrði fjármagn í nýja atvinnustefnu Akureyrarbæjar en þetta er í annað sinn sem því er hafnað. Mikilvægt er að við horfum til framtíðar og setjum okkur markmið um hvert við viljum stefna sem sveitarfélag til lengri tíma. Eitt af þeim verkefnum er að vinna metnaðarfulla stefnu í verðmætasköpun í samstarfi við atvinnulífið, stofnanir, frumkvöðla, íþróttahreyfinguna, menningarstofnanir og ferðaþjónustuaðila. Sunna Hlín Jóhannesdóttir oddviti Framsóknar á Akureyri- 04.12
-
mánudagur, 04. desember
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra íhugar dagsektir verði tiltekt ekki lokið fyrir 10. desember
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra gaf í haust lóðarhafa við Hamragerði frest til að ljúka tiltekt á lóð sinni til 20. október. Á fundi nefndarinnar á dögunum kom fram að staðfest hafi verið við skoðun á lóðinni 2. nóvember síðastliðinni að tiltekt væri ekki lokið. Samþykkti nefndin að áminna lóðarhafa vegna brota er varða umgengni og þrifnað utan húss á starfsvæði hennar og var sú áminning veitt í samræmi við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir. Jafnframt samþykkti nefndin að veita lóðarhafa lokafrest til 10. desember nk. til þess að ljúka tiltekt á lóðinni. Tæki og hluti sem ekki eru í almennri eða stöðugri notkun skal geyma þannig að nágrannar og vegfarendur hafi ekki ama af. Bifreiðar og önnur skráningarskyld ökutæki skal geyma á þar til gerðum stæðum segir í bókun nefndarinnar og jafnframt að hún íhugi að beita dagsektum verði ekki brugðist á fullnægandi hátt við fyrir 10. desember. Leifur Þorkelsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra segir að áminning sé vægasta þvingunarúrræði sem lög leyfa. Hann segir að í einhverjum tilfellum hafi nefndin krafist þess að umgengni á einkalóðum sé bætt, en þá er oft um að ræða að bílum og öðrum lausamunum sé safnað upp í miklum mæli á og við lóðirnar. Sáralítið sé um kvartanir eða ábendingar vegna númerslausra bíla á einkalóðum, enda hafi menn ákveðið frjálsræði varðandi umgengni á einkalóðum sínum. „Við erum að ekki að skipta okkur af númerslausum bílum inn á einkalóðum nema af þeim stafi mengunar eða slysahætta til dæmis olíuleki eða brotnar rúður. „- 04.12
-
- 04.12
-
sunnudagur, 03. desember
Taka jákvætt í ferð til Danmerkur
Bæjarráð Akureyrar hefur tekið jákvætt í erindi frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur framkvæmdastjóra SSNE varðandi áhuga sveitarfélaga á kynnisferð á vegum samtakanna til Danmerkur 4.- 7. mars 2024.- 03.12
-
sunnudagur, 03. desember
Þelamerkurskóli - Sóttu jólatré í skóginn
Nemendur í 1. bekk í Þelamerkurskóla fóru upp í skóg að sækja jólatré fyrir skólann. Þau komu skælbrosandi til baka og fóru að renna sér á þoturössunum á leikvellinum. Það þarf svo sannarlega ekki bratta brekku til að hafa gaman. Gleðin skein úr hverju andliti- 03.12
-
sunnudagur, 03. desember
Jólatónleikaveisla Tónlistarskólans framundan
Að vanda verður mikið um að vera í Tónlistarskólanum á Akureyri í desember og því kjörið tækifæri að komast í hátíðarskap með því að koma á einhvern af þeim fjölda jólatónleika sem verða á dagskrá- 03.12
-
laugardagur, 02. desember
Gert ráð fyrir auknum skuldum í Norðurþingi
,,Skýrist af fyrirhuguðum stórum framkvæmdum á árinu á borð við hjúkrunarheimili og frístundahúsnæði,“ segir í bókun sveitarstjórnar.- 02.12
-
laugardagur, 02. desember
Býður þú alheiminum með þér upp í sófa á kvöldin?
Lífið í nútímanum veltur sífellt meira á utanaðkomandi þáttum. Upplýsingaflæðið umlykur allt sem við gerum hvort sem það er í vinnu, skóla eða í frítíma. Við réttlætum stöðuga nálægð og viðveru í snjalltækjum þannig að hægt sé að ná í okkur öllum stundum „það verður að vera hægt að ná í mig ef eitthvað skyldi koma upp á,“ heyrist gjarnan. Margir eru smeykir við að missa af símtali, skilaboðum, uppfærslum, viðburðum, afmælisdögum eða að láta fréttir fram hjá sér fara. Kannski er tilfinning fólks í dag sú að það þurfi alltaf að hafa svörin á reiðum höndum og vera á tánum.- 02.12
Aðsendar greinar
-
Gunnar Níelsson skrifar
Hvert er sveitarfélagið að stefna?
Sveitarfélög landsins eru að ljúka fjárhagsáætlanagerð þessa dagana í ástandi sem einkennist af háum vöxtum, verðbólgu og óvissutímum á vinnumarkaði. Hvert er þá hlutverk sveitarfélaganna? Sýnum aðhald og ábyrgð Til að ná niður verðbólgunni þurfa allir að leggja lóð sitt á vogarskálarnar. Sveitarfélög þurfa að sýna aðhald, varkárni í gjaldskrárhækkunum og álögum á íbúa og fyrirtæki, varast þenslu í framkvæmdum og um leið verja heimilin fyrir gríðarlegum hækkunum. Auðvitað hafa sveitarfélögin, rétt eins og heimilin, fundið fyrir bæði verðbólgu og vaxtahækkunum. Tekjur þeirra hafa hins vegar á sama tíma aukist töluvert í gegnum útsvar. Hvað gerir Akureyrarbær? Fjárhagsáætlun Akureyrar er um margt athyglisverð. Við erum að sjá miklar hækkanir á gjaldskrám, eða 9% að jafnaði. Þá leggur meirihlutinn til óbreytta fasteignaskattsprósentu, þrátt fyrir 22.1% hækkun á fasteignamati milli ára. Ekki á að sýna aðhald eða gefa eftir í framkvæmdum. Þvert á móti er stefnt á lántöku vegna nýrra fjárfestinga upp á rúman milljarð í A-hluta og það í háu vaxtaumhverfi. Þrátt fyrir mikil uppbyggingaráform er ekki verið að vinna að því með sama krafti að taka á móti nýjum íbúum, og þannig auka tekjur sveitarfélagsins til lengri tíma litið. Sem dæmi á að draga úr fjárveitingum til nýbyggingu gatna um 5.5% þrátt fyrir þá staðreynd að nú þegar hefur orðið mikil seinkun á að fyrstu lóðir í Móahverfi verði byggingarhæfar. Í núverandi vaxtaumhverfi munu verktakar eðlilega halda að sér höndum en sveitarfélögin mega samt ekki tefja fyrir íbúðauppbyggingu. Ef þau gera það, þá mun það aðeins valda áframhaldandi spennu á íbúðamarkaði þegar vextir taka að lækka og byggingarfyrirtækin fara að hugsa sér til hreyfings að nýju. Hættan er að við sitjum aftur uppi með lóðaskort á Akureyri og verðum af uppgangi og hagvexti fyrir okkar sveitarfélag. Það má ekki gerast, við höfum ákveðnum skyldum að gegna þegar kemur að húsnæðisuppbyggingu í landinu og full ástæða til að sýna stórhug í þeim efnum. Ekki tekin afstaða til fjármagns í nýja atvinnustefnu Að endingu finnst okkur bæjarfulltrúum Framsóknar miður að ekki hafi verið tekin afstaða til tillögu okkar þess efnis að sett yrði fjármagn í nýja atvinnustefnu Akureyrarbæjar en þetta er í annað sinn sem því er hafnað. Mikilvægt er að við horfum til framtíðar og setjum okkur markmið um hvert við viljum stefna sem sveitarfélag til lengri tíma. Eitt af þeim verkefnum er að vinna metnaðarfulla stefnu í verðmætasköpun í samstarfi við atvinnulífið, stofnanir, frumkvöðla, íþróttahreyfinguna, menningarstofnanir og ferðaþjónustuaðila. Sunna Hlín Jóhannesdóttir oddviti Framsóknar á Akureyri -
Inga Hildur Jóhannsdóttir skrifar
Býður þú alheiminum með þér upp í sófa á kvöldin?
Lífið í nútímanum veltur sífellt meira á utanaðkomandi þáttum. Upplýsingaflæðið umlykur allt sem við gerum hvort sem það er í vinnu, skóla eða í frítíma. Við réttlætum stöðuga nálægð og viðveru í snjalltækjum þannig að hægt sé að ná í okkur öllum stundum „það verður að vera hægt að ná í mig ef eitthvað skyldi koma upp á,“ heyrist gjarnan. Margir eru smeykir við að missa af símtali, skilaboðum, uppfærslum, viðburðum, afmælisdögum eða að láta fréttir fram hjá sér fara. Kannski er tilfinning fólks í dag sú að það þurfi alltaf að hafa svörin á reiðum höndum og vera á tánum. -
Hallur Örn Guðjónsson skrifar skrifar
Finna upp hjólið aftur, nema núna ferhyrnt.
Nú stendur til að breyta til í sorpmálum á landsvísu. Allir íbúar landsins verða skikkaðir til að fá tvær tvöfaldar tunnur við heimili sín til að flokka. Almennt sorp, lífrænt, pappír og plast. Þar sem ég hef unnið í 23 ár við sorphirðu á Akureyri og nærsveitum og geri enn hef ég nokkrar athugasemdir. -
Jórmundur Kristinsson skrifar
Fleiri karlar sækja í hjúkrunarfræði
Í ár innritaðist metfjöldi karla í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og við Háskóla Íslands. Tuttugu og sex karlkyns umsækjendur sóttu um námið og innrituðust,sem þýðir að karlar eru Tæplega 8% nýnema í hjúkrunarfræði í ár. Árin 2021 og 2022 var hlutfall karla sem innrituðust í hjúkrunarfræði 4,3% og 6,3% og því er ljóst að áhugi karla á náminu er að aukast.
Mannlíf
-
„Það er greinilega þörf á þessu“
Frískápurinn á Húsavík slær í gegn -
Úthlutun úr Menningar-og viðurkenningarsjóði KEA í 90 skipti
KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins þann 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri nú síðdegis. Var þetta í 90. skipti sem veitt er úr sjóðnum. Úthlutað var tæplega 24,7 milljónum króna til 60 aðila. Styrkúthlutun tók til þriggja flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins: Menningar- og samfélagsverkefna, Íþrótta- og æskulýðsfélaga og Ungra afreksmanna. -
Tvær nýjar sýningar á Listasafni
Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri á laugardag, 2. desember kl. 15, annars vegar sýning Sigurðar Guðjónssonar, Hulið landslag, og hins vegar sýningin Safn: Hildigunnur Birgisdóttir og verk úr safneign. Á opnunardegi kl. 15.40 verður listamannaspjall um báðar sýningar. Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk, þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum sjónum að virkni margs konar tækjabúnaðar, þar sem áhorfandinn er lokkaður inn í heim sefjandi endurtekningar, takts og reglu og mörk hins mannlega og vélræna verða óljós. Safn: Hildigunnur Birgisdóttir og verk úr safneign Hin sýningin varð til þannig að safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Hlynur Hallsson, leitaði til Jóns B. K. Ransu, sýningarstjóra, um að setja saman sýningu úr safneigninni, sem þá leitaði til myndlistarkonunnar Hildigunnar Birgisdóttur til að vinna sjónrænt með safneignina – í raun eins og að um hvert annað hráefni væri að ræða. Hildigunnur er þekkt fyrir að nota söfnun og skrásetningu sem hluta af listsköpunarferlinu. -
Agnes og Ólöf Norðurljósin 2023
Agnes Emma Charlesdóttir Guanci, sex ára, og Ólöf Birna Kristjánsdóttir, níu ára, voru valdar Norðurljósin 2023, hæfileikakeppni sem haldin var í tengslum við jólatónleikana Jólaljós og lopasokkar -
Líf og fjör á Degi sjúkrahússins
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) ásamt starfsfólki sjúkrahússins stóðu fyrir Degi sjúkrahússins á Glerártorgi sl. laugardag milli kl. 14:00 og 16:00. Stjórnarmenn í Hollvinasamtökum SAk gengu um og söfnuðu nýjum félagsmönnum og margir nýttu sér boð um að láta starfsfólk SAk mæla hjá sér blóðþrýsting, súrefnismettun og púls. Síðast en ekki síst komu fjölmörg börn með uppáhaldsleikfangið sitt í læknisskoðun og ýmsar aðgerðir. Hollvinir SAk eru vel á þriðja þúsund talsins og fjölgaði um nokkra tugi um helgina. „Við viljum fjölga þeim enn frekar á næstu mánuðum, því 6.000 króna árgjald félagsmanna er sá grunnur sem Hollvinir SAk byggja starfsemi sína á,“ segir Jóhannes G. Bjarnason, formaður stjórnar Hollvinasamtakanna.
Íþróttir
-
Golfklúbbur Akureyrar ,,Nú skal hafist handa"
Það var glatt á hjalla á Jaðri síðdegis í gær þegar um 100 félagsmenn mættu og voru viðstaddir þegar Gísli Bragi Hjartarson, heiðursfélagi GA, tók fyrstu skóflustunguna af viðbyggingu sem mun rísa vestan við klúbbhúsið og hýsa inniaðstöðu GA. -
„Þetta var rosalega skemmtileg upplifun“
-Segir Hildur Sigurgeirsdóttir frá Húsavík sem vann tvö bronsverðlaun á Heimsleikum Special Olympics -
Ný 100 km hlaupaleið í fjallahlaupinu Súlur Vertical
Leiðin hefur fengið nafnið Gyðjan sem vísar til upphafsstaðar hlaupaleiðarinnar sem er við Goðafoss. -
Þúsundir á Akureyri vegna fótboltamóta
N1-fótboltamót drengja var sett á hádegi í dag og stendur fram á laugardag og Pollamót Samskipa fer fram á föstudag og laugardag -
Góður gangur hjá Golfklúbbi Akureyrar
Óhætt er að fullyrða að góður gangur sé hjá Golfklúbbi Akureyrar um þessar mundir. Jaðarsvöllur hefur að sögn þeirra sem best til þekkja sjaldan eða aldrei verið jafn góður og er óhætt að segja að fólk kunni vel að meta því mikið er spilað á vellinum þessa dagana og á tíðum komast færri að en vilja.