B.Jensen vormòt Òðins Jón Ingi Einarsson sló 3 Akureyrarmet í flokki 13-14 ára

B.Jensen vormòt Òðins fór fram s.l laugardag   Myndir aðsendar
B.Jensen vormòt Òðins fór fram s.l laugardag Myndir aðsendar

B.Jensen vormót Óðins var haldið í blíðskaparveðri í Sundlaug Akureyrar laugardaginn 17. Maí. Keppendur voru 62 frá Óðni auk 1 frá Sundfélaginu Rán á Dalvík. Yngstu keppendurnir voru fæddir 2016 og 2017 en þau fóru flest að taka þátt í fyrsta sinn. Það er skemmst frá því að segja að þau stóðu sig frábærlega vel þrátt fyrir að hafa velflest aldrei stungið sér af startpalli, þar sem enginn slíkur er í Glerársundlaug, þar sem grasrótarstarf Óðins fer fram.

Sigurvegari mótsins var þó að öðrum ólöstuðum Jón Ingi Einarsson sem sló 3 gömul Akureyrarmet í aldursflokki 13-14 ára. Það fyrsta þegar hann synti 50 m. Baksund á tímanum 30.80 en það met var skráð á Svavar Þór Guðmundsson frá árinu 1985, en það var 31.30.

Annað metið var svo í 50m. Flugsundi þar sem Jón Ingi synti á 28.74 en gamla metið frá 1990 átti Òmar Þorsteinn Árnason og það var 29.90. Og að lokum í 100m. Fjórsundi en þar synti Jón Ingi á 1:07,55 en fyrra met átti Birkir Leó Brynjarsson og það var ekki eins gamalt eða frá árinu 2011 og sá tími var 1:08.01.

Sundlið Óðins er ungt að árum og svo mun verða á meðan ekki rætist úr aðstöðumálum félagsins. Nú síðast hefur Alicia Júlía Kempisty stigahæsta sundkona Óðins á síðasta ári ákveðið að flytja til Hafnarfjarðar til að æfa við bestu aðstæður. Þar fer efnileg sundkona en það vel skiljanlegt, þegar kona ætlar sér meira en að vera efnileg!

Yfirþjálfari Óðins er sem stendur Kristjana Pálsdóttir Margrétardóttir en á síðasta aðalfundi var hún kjörinn formaður Óðins. En það er gaman að segja frá því að móðir hennar var formaður félagsins á árunum 1998-2001. Þetta eru fyrstu mæðgurnar sem gegnt hafa þessari stöðu í sögu félagsins.

Í haust kemur svo Ragnheiður Runólfsdóttir aftur og tekur á ný við sem yfirþjálfari.

Framundan er svo Íslandsmeistaramót Aldursflokka sem fram fer í Akureyrarlaug dagana 20-22 júní.

Áfram Óðinn!

Þettta segir  i tilkynningu frá félaginu.

Jón Ingi Einarsson sem setti þrjú ný Akureyrarmet í aldursflokki 13-14 ára

 

Nýjast