„Ég er og verð alltaf Öxfirðingur,“ segir Aðalbjörn Jóhannsson með bros á vör. Hann er stýri Ergi, félags hinsegin stúdenta á Norðurlandi og lýsir sér sem sveitamanni, bókaormi, sérlegum áhugamanni um fólk og fylgist með kosningasjónvarpi af sömu innlifun og önnur fylgjast með Eurovision. Með rætur í Norður- og Suður-Þingeyjarsýslu, tengingu við Akureyri frá unglingsárum og smá Norðmann í blóðinu, hefur Aðalbjörn komið sér fyrir í BA námi í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri. Hann viðurkennir að leiðin hafi upphaflega legið í kennaranám, en í dag blómstrar áhugi hans á fólki og samfélagsmálum í háskólanum þar sem samheldni og stuðningur skína í gegn.
Ergi – rótgróið í nýrri bylgju
Ergi var stofnað á árinu til að svara skýrri þörf: Skorti á vettvangi fyrir hinsegin stúdenta á Norðurlandi. Aðalbjörn lýsir því hvernig félagið varð til með ákveðinni jarðýtuaðferð og „þetta reddast“ hugarfari.
„Eins varð okkur mjög fljótt ljóst að það er stór hópur fjarnema sem býr á Norðurlandi en tilheyrir skólum úti um allan heim. Við viljum því leggja áherslu á að þrátt fyrir að þungamiðja Ergis sé á Akureyri og í kringum HA þá er félagið og starfsemi þess opin öllum sem hafa áhuga, óháð skóla eða skólavist, enda félag hinsegin stúdenta á Norðurlandinu öllu,“ segir Aðalbjörn eina af tveimur ástæðum þess að þörf var á að stofna Ergi. Hin ástæðan er sú að þrátt fyrir mikinn velvilja frá háskólanum, sveitarfélögum og þeim samfélögum sem hinsegin fólk tilheyrir þá eru ýmsir þröskuldar, hræðsla og vaxandi undiralda mótlætis sem þarf að takast á við og svara.
„Við viljum skapa öruggt og opið umhverfi þar sem fólk getur upplifað að það tilheyri. Þegar fólk finnur að það tilheyrir eykur það vellíðan og skapar opnara og heilbrigðara háskólasamfélag,“ segir Aðalbjörn og bætir við: „Ergi er í grunninn félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi en það standa engin í hliðinu og mæla hinseginleika, öll eru mjög velkomin að starfinu og það á jafnt við um stúdenta, starfsfólk eða aðra aðila sem hafa áhuga á því sem við erum að gera.“
Með stofnun Ergis varð því loksins til langþráður vettvangur fyrir hinsegin stúdenta, annað ungt fólk og tengda aðila til að deila eigin hinseginleika, reynslu og upplifunum með jafningjum sínum; hagsmunafélag sem berst fyrir sjónarmiðum hinsegin fólks í stefnumótun háskóla, hagsmunasamtaka stúdenta og opinberra aðila; samfélag sem leggur áherslu á hinsegin menningu og valdeflandi fræðslu fyrir stúdenta, kennara og almenning; og stuðningsnet sem horfir til þess að hlúa að líðan, sjálfsmynd og andlegri heilsu meðlima sinna.
Að upplifa háskóladrauminn
Aðalbjörn lýsir námssamfélaginu í HA við það sem hann hafði séð í amerísku bíómyndunum, allavega því góða, þar sem samkennd og nálægð milli stúdenta og kennara er hluti af daglegu lífi. Uppáhaldsstaður hans í HA er Teppið – samkomustaður stúdenta í skólanum þar sem er lært, aðstoð veitt og gefin og stundum gripið í gamla góða slúðrið. „Staðtímar eru galdur,“ segir hann og hvetur öll, líka fjarnema, til að mæta í allavega einn tíma eða spjall við kennarann um hugðarefni námsins.
Aðalbjörn tekur þátt í Pride 2023
Aðalbjörn segir einn af kostunum við félagsvísindanámið í HA vera hvað það er góður undirbúningur fyrir rannsóknir: „Þó að ég hafi stundum blótað aðferðafræðikúrsunum þá er ég að vinna við framkvæmd rannsóknar hjá Þekkingarneti Þingeyinga í sumar og finn hvað áherslur skólans hafa verið góður og hagnýtur undirbúningur.“
Í samtalinu leggur Aðalbjörn áherslu á mikilvægi þess að tungumálið þróist áfram – að það taki mið af breyttum veruleika og víðari skilningi. Kynhlutlaust mál á að eiga sér sess, rétt eins og kynjað mál þegar það á við. „Við gerum íslenskri tungu engan greiða með því að takmarka möguleika hennar til að stækka í takt við nýjan veruleika.“
Með einlægni, djúpri samfélagsmeðvitund og hressilegri glettni stendur Aðalbjörn fyrir því sem Ergi og HA vilja byggja upp: Mennsku, fjölbreytni og rými fyrir öll.
Háskólinn í liði með fjölbreytileikanum
Aðalbjörn telur viðburði líkt og Hinsegin hátíðina afar mikilvægt innlegg: „Þetta eykur sýnileika, býr til vettvang þar sem lifandi kynni geta brotið niður fordóma og skapar vonandi þá tilfinningu að samfélagið ætli sér að styðja við hinsegin fólk og veruleika þess allt árið um kring.” Hann segir að Ergi sé ekki formlegur aðili að hátíðinni í ár, enda stofnun þess rétt að baki, en þrátt fyrir það munu félagar taka þátt og standa fyrir viðburðum.
Hinsegin hátíð á Norðurlandi fer fram 18.–22. júní og lýsir Aðalbjörn henni sem viðburði sem „færi hinseginleika heim“. Hátíðin er vettvangur til að sýna að fjölbreytileiki og hinseginleiki blómstri líka fyrir norðan. Hátíðin hefur ekki aðeins samfélagslegt gildi heldur einnig menningarlegt og efnahagslegt vægi. Finna má dagskrá hátíðarinnar og upplýsingar á vefsíðunni hinseginhatid.is.
Háskólinn á Akureyri tekur virkan þátt í hátíðinni og styður við Ergi og samfélagið með ýmsu móti: flaggar hinsegin fánanum, býður starfsfólki í regnbogakaffi og nýtir samfélagsmiðla skólans til að styðja við hinsegin samfélagið því Ergi mun vera með yfirtöku þeirra meðan á hátíðinni stendur. Þannig miðlar skólinn boðskap fjölbreytileikans og sýnir með áþreifanlegum hætti að öll eru velkomin innan veggja hans.