Um helgina fór fram Gull- og Silfurmótið Akureyri Open í boði Sportver. Mótið var haldið af Frisbígolffélagi Akureyrar og fór fram á frisbígolfvellinum við tjaldstæðið á Hömrum. Keppnin stóð yfir í þrjá daga og tóku 83 keppendur þátt víðsvegar að af landinu.
Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið upp á sitt besta létu keppendur það ekki trufla sig og stemningin var frábær alla helgina.
Frisbígolf er vaxandi íþrótt á Akureyri og nýtur sífellt meiri vinsælda. Nú þegar eru sex vellir í og við bæinn: við tjaldstæðið að Hömrum, á Hamarkotstúni, við VMA, við Háskólann á Akureyri, á Svalbarðseyri og í Hrísey.
Sigurvegarar í hverjum flokki voru eftirfarandi:
Frisbígolffélag Akureyrar býður öllum áhugasömum að skrá sig í félagið sér að kostnaðarlausu. Upplýsingar um félagið, viðburði og vellina má finna á www.fga.is og á Facebook-síðu félagsins: facebook.com/frisbigolffelagakureyrar.