Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að gera þriggja ára samning við Flugklasann Air 66N,. Samkvæmt honum verða greiddar 500 krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins árlega. Nágrannasveitarfélögin hafa einnig samþykkt að gera slíka samninga vegna Flugklasans, þe. Svalbarðsstrandarhreppur, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit. Þingeyjarsveit hefur tekið jákvætt í erindið. Önnur sveitarfélög á svæðinu taka erindi Flugklasans fyrir á næsta fundi sínum.
Beint millilandaflug um Akureyrarflugvöll hefur gjörbreytt rekstrargrundvelli ferðaþjónustu á Norðurlandi undanfarin 15 ár. Þetta kemur fram í erindi frá Hjalta Páli Þórarinssyni, verkefnastjóra Flugklasans Air 66N, en hann óskar eftir því að sveitarfélög á svæðinu tryggi áframhaldandi fjármögnun til þriggja ára, þ.e. tímabilið frá 2027 til 2029 upp á 500 krónur á íbúa á ári vegna ríkjandi óvissu um framlög ríkisins.
Um 50 þúsund sæti í boði næsta ár
Hjalti bendir í bréfi sínu á að tvö flugfélög sinni nú áætlunarflugi og tvær ferðaskrifstofur leiguflugi á ákveðnum tímum árs. Næsta ár verða í boði tæplega 25 þúsund flugsæti báðar leiðir eða um 50 þúsund sæti samtals.
Rannsóknir sýna að ferðamenn sem lenda á Akureyri dvelja lengur og eru ferðaþjónustufyrirtækjum á svæðinu a.m.k. tvöfalt verðmætari en þeir sem koma um Keflavíkurflugvöll. Síðasta árið lögðu erlendir ferðamenn með beinu flugi til vel á annan milljarð króna til fyrirtækja á svæðinu.
Uppbyggingin er meginforsenda fyrir tugum milljarða króna fjárfestinga í nýjum hótelum og innviðum á svæðinu sem styðja við heilsársrekstur fyrirtækja og stuðla einnig að að betri dreifingu ferðamanna um landið.
Fjögur flugfélög fljúgi til Akureyrar 2030
Verði verkefni Flugklasans haldið áfram er stefnt að því að árið 2030 muni fjögur flugfélög fljúga beint frá fjórum löndum allt árið, 60.000 erlendir ferðamenn komi með fluginu, dagleg eyðsla þeirra á svæðinu muni færa því 10 milljarða króna og landsframleiðsla aukist um 7,7 milljarða.
Vonir eru bundnar við að Flugklasinn fái áfram fjármagn frá ráðuneyti ferðamála til að halda áfram starfinu til næstu ára og telja menn að mikilvægi verkefnisins hafi náð eyrum ráðherra. Óskað hefur verið eftir þriggja ára samningi en engin staðfesting liggur fyrir um áframhaldandi fjármögnun. Í ljósi óvissu um framlög ríkisins er fjárhagslegur stuðningur sveitarfélaganna við Flugklasann því enn nauðsynlegur.