Í BLEIKUM KJÓL OG MEÐ HATT - Gluggasýning í Hafnarstræti 88

Ný gluggasýning hefur verið sett upp i Hafnarstræti 88  Myndir aðsendar
Ný gluggasýning hefur verið sett upp i Hafnarstræti 88 Myndir aðsendar

Í tilefni af Bleikum október hafa systurnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten sett upp gluggasýninguna Í bleikum kjól og með hatt á vinnustofu þeirrar síðarnefndu.

Málefnið stendur þeim nærri enda greindist Brynja með brjóstakrabbamein árið 2021 og lauk meðferð ári síðar. Formlegri eftirfylgni lauk á þessu ári og voru það heilmikil tímamót fyrir Brynju sem er frísk í dag.

GLUGGINN virðist alsæll með sýninguna enda skreyttur bleikum kjólum, höttum og skóm. Hann virðist jafnvel taka dansspor og benda íbygginn á gifsbrjóst í gluggakistunni. Um er að ræða afsteypu af brjóstum Brynju sem tekin var áður en krabbameinið var skorið í burtu. Brynja segir kankvís “ það er ekki á hverjum degi sem ég er með brjóstin mín út í glugga.”

Að sögn Brynju er ósk þeirra systra að Glugginn vekji athygli á árlegu árveknisátaki gegn krabbameinum hjá konum og minni fólk á að skoða brjóst sín reglulega. Eins vilja þær systur hvetja fólk til að nota leikinn sem bjargráð í amstri dagsins. “Það er svo heilandi að gleyma sér í leik, hvort sem hann er sjálfsprottinn eða útpældur – og gluggasýningar okkar systra eru gott dæmi um slíkt.“ segir Brynja.

„Vonandi sjáum við sem flest á föstudaginn 9. október kl. 16–20, en þá verður vinnustofan opin og tekur þátt í Dekurdögum hér á Akureyri. Auk gluggans verður hægt að kíkja á myndlist, keramik og fatahorn – og ekki síst ný píkublóm eftir mig, verkaseríu úr endurunnu handverki sem ég kalla Hjartadrottningar.“

 

Kær kveðja

Brynja og Áslaug  

Frá þessu segir í tilkynningu frá þeim systrum.

Nýjast