Ungverjinn Ádám Ferenc Gulyas kom fyrst til Íslands árið 2016 til að starfa sem læknir á Akureyri.
Nýtt tungumál, framandi hefðir og langir, dimmir vetur reyndi á, en þegar hann sneri aftur til Ungverjalands fór hann að sakna Íslands. Í dag er hann sérfræðingur í heimilislækningum hjá HSN á Akureyri og Húsavík. Utan vinnunnar á skákin stóran sess í lífi hans, áhugamál sem tók við sér í heimsfaraldrinum.
Ádám fæddist í Debrecen í austurhluta Ungverjalands. Þar lærði hann læknisfræði, útskrifaðist árið 2013 og hóf störf við háskólann á sviði réttarmeinafræði. Þar kynntist hann einnig Íslendingum og þau kynni áttu þátt í því hvert leið hans lá.
„Eftir nokkur ár langaði að breyta til og spreyta mig erlendis, helst á Norðurlöndunum. Ísland lá beint við. Ég þekkti Íslendinga og gat byrjað að vinna með enskuna að vopni.“ Árið 2016 hóf hann störf sem deildarlæknir á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri.
„Það var ákveðið menningarsjokk að koma hingað og erfitt að tala ekki málið. En eftir um hálft ár fór ég að ná betri tökum á íslenskunni og eftir eitt ár gat ég talað við samstarfsfólk og skjólstæðinga á íslensku.“ Ádám sneri aftur til Ungverjalands í um hálft ár á tímabilinu 2017–2018 og hóf störf á sviði myndgreiningar. „Það er flott grein innan læknisfræðinnar, en hentaði mér bara ekki. Svo fór ég að sakna Íslands og ég áttaði mig á því að mig langaði að vera hér.“
Leiðin lá nú til Húsavíkur, en þar leið honum vel, hann þróaðist í starfi og bætti sig í íslensku. Árið 2019 hóf hann sérnám í heimilislækningum og tók hluta þess á Akureyri.
Ádám er nýfluttur til Akureyrar, þar sem hann býr ásamt unnustu sinni. Hann hefur starfað hjá HSN þar síðan í maí, en vinnur áfram rúmlega viku í mánuði á Húsavík.
„Ég vildi ekki slíta tengslin við Húsavík. Þar er gott fólk og gott að vinna. Það hentar mér vel að hafa þessa blöndu, að vera heimilislæknir á Akureyri og sinna fjölbreyttum verkefnum sem héraðslæknir á Húsavík. Einn daginn fer maður með sjúkrabíl í útkall. Næsta dag sinnir maður móttöku og þann þriðja er stofugangur á sjúkradeildinni. Mér finnst þessi fjölbreytni mjög skemmtileg.“
Samskiptin við fólkið skipta hann ekki síður máli. „Mér finnst gaman að spjalla, hjálpa fólki og kynnast því. Ég nýt þess að tala við Íslendinga og hlusta. Mig langar líka að læra íslenskuna enn betur.“ Hann les íslenskar bækur og lærir að miklu leyti á eigin spýtur, en starfið gefur honum daglega æfingu. „Ég er í góðu starfi til að læra íslenskuna, það væri eflaust erfiðara í starfi þar sem lítið er talað. Ég er ekki feiminn við að spyrja þegar ég skil ekki orð, skrifa það niður og fletti því upp.“
Ádám tefldi við pabba sinn í æsku, en fór ekki að sinna skákinni af alvöru fyrr en árið 2020. „Ég var eðlilega mikið heima á þessum tíma og byrjaði að tefla og lesa mér til um skákfræði. Ég byrjaði nánast frá grunni, en hef verið duglegur og smátt og smátt hefur mér farið fram.“ Þættirnir The Queen’s Gambit ýttu einnig undir áhugann og hann fór að tefla á chess.com. „Kannski er áhuginn að hluta til nostalgía frá því ég var krakki. Mig langaði að læra þetta almennilega og verða góður, en skák er erfið og flókin, maður getur alltaf bætt sig. Ég er áhugaskákmaður og þetta er eilífðarverkefni, góð heilaleikfimi.“
Ádám er félagi í skákfélaginu Goðanum á Húsavík, þar sem hann hefur fundið góðan félagsskap. „Þarna er mjög gott fólk. Við höldum reglulega skákmót og förum saman suður til að keppa, til dæmis á Íslandsmóti skákfélaga og Reykjavík Open. Þetta er mjög gaman og bara yndislegur félagsskapur.“ Í sumarfríi í Debrecen, þar sem hann heimsótti foreldra sína og vini, gafst óvænt tækifæri til að keppa.
„Það var haldið skákmót sem passaði akkúrat við dvölina, svo ég ákvað að prófa. Þetta var fyrsta skákmótið mitt í Ungverjalandi. Ég varð í fimmta sæti af fjörutíu keppendum, en undir lokin munaði litlu að ég næði öðru sæti eða jafnvel sigraði. En maður lærir helling af því að tapa. Það er hluti af því að verða betri.“

Ádám sér ákveðin líkindi með skákinni og læknisstarfinu. „Í skák þarf maður að hugsa mörg skref fram í tímann og reikna út næstu leiki. Það er stundum svipað í vinnunni og lífinu. Hvað ætla ég að gera næst? Hvað þarf að gerast í dag eða á næstu vikum? Skák er samt auðvitað spil, en þessi hugsun um næstu skref getur hjálpað manni að skipuleggja lífið og starfið.“ Hann hefur einnig áhuga á lyftingum og keppti um tíma, en æfingarnar eru nú fyrst og fremst leið til að fá útrás.
Fyrstu kynni Ádáms af Íslandi eru honum enn í ljósu minni. Hefðirnar, maturinn og langur veturinn voru framandi. „Fyrsta árið var mjög erfitt og það er ekkert leyndarmál. En á endanum varð ég ástfanginn af landinu og fólkinu. Þegar ég sneri aftur til Ungverjalands fór ég að sakna Íslands og áttaði mig á því að ég vildi vera hér. Hér líður mér mjög vel.“
Viðtal þetta birtist fyrst á vef HSN