Drift EA hefur valið fyrirtækin Haflind, Terramar og Vaxandi byggð til áframhaldandi stuðnings í Hlunninum. Drift EA hefur nú fjárfest í níu norðlenskum nýsköpunarfyrirtækjum síðan félagið var stofnað árið 2024, auk þess sem sex önnur verkefni hafa fengið vinnuaðstöðu, ráðgjöf og stuðning hjá félaginu.
Hlunnurinn (e. incubator) er vettvangur innan Driftar EA fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni þar sem teymi fá heildstætt utanumhald og tækifæri til að þróa verkefni sín áfram með fjölbreyttu aðgengi að ráðgjöf, sérfræðingum, þjálfun, vinnuaðstöðu og tengslaneti. Stuðningurinn er sniðinn að þörfum hvers verkefnis og getur einnig falið í sér fjárfestingu.
„Frumkvöðlastuðningur Driftar EA er algjör forsenda fyrir árangri og verðmætasköpun á svæðinu. Hann gerir þeim sem eru að koma nýjum hugmyndum á koppinn kleift að einbeita sér að þeim af fullum krafti,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA á Akureyri.
„Það er eitt að fá góða hugmynd og annað að byggja hana upp í lífvænlegt fyrirtæki. Við vinnum með frumkvöðlunum í þeirri vegferð og hjálpum þeim að komast yfir erfiðustu hjallana”.
Að sögn Sesselju eru til margir góðir og gagnlegir viðskiptahraðlar á Íslandi sem frumkvöðlar geta nýtt sér, oftast stuttir og snarpir og henta ekki alltaf frumkvöðlum af landsbyggðinni, en þegar þeim lýkur getur verið erfitt fyrir frumkvöðla að stíga næstu skref.
„Það getur verið tímafrekt að sækja styrki og finna fjármagn og stundum sitja verkefni lengi föst í því umhverfi. Við sjáum mikinn ávinning af því að fylgja verkefnum eftir yfir lengri tíma. Með Hlunninum viljum við létta undir með frumkvöðlunum og gefa þeim tíma og svigrúm til að þróa verkefnin áfram og veita þeim aðgang að vinnuaðstöðu, fjármagni, ráðgjöf, sérfræðingum, þjálfara og tengslaneti í eitt ár eða lengur, eftir þörfum.
Frá þessu segir í fréttatilkynningu Driftar í morgun