Hvernig samfélag viljum við skapa saman

Gamli skóli í sólbaði.
Gamli skóli í sólbaði.

Verkefnið Samtal, félag til almannaheilla sem stofnað var að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, býður fólki á öllum aldri til samstarfs um framtíð landsins. Hún vill setja samtal og frið á dagskrá á ný.

Markmiðið er að skapa vettvang þar sem almenningur, skólar og félagasamtök koma saman til að hlusta hvort á annað og ræða spurninguna: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Forseti er verndari verkefnisins en meginboðskapurinn er skýr: samtalið eigum við saman til að gera samfélagið sterkara.

Þetta samtal mun eiga sér stað í framhaldsskólum um allt land laugardaginn 10. október. Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri munu styðja við nemendafélög skólanna svo slíkt samtal geti átt sér stað á Akureyri.

Framhaldsskólarnir eru vettvangur samtalsins og nemendur sjá um að lóðsa það þar sem yngra og eldra fólki er boðið að taka þátt og skapa þannig raunverulegt samtal á milli kynslóða. Hugmyndirnar og sjónarmiðin sem koma fram í samtalinu verða dregin saman og þeim deilt með allri þjóðinni.

Stjórnir Hugins og Þórdunu ásamt fleiri nemendum munu taka á móti gestum í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri á laugardag, klukkan 13.30.

Nýjast