Hver fær reikninginn?

Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki
Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki

Í desember 2023 sagði Kristrún Frostadóttir, þá formaður Samfylkingarinnar: „Nú verður að milda höggið fyrir heimilin.“ Hún gagnrýndi að dregið væri úr stuðningi við skuldsett heimili og leigjendur á tímum hárra vaxta og verðbólgu. Vaxtabótakerfið næði einmitt til „tekjulægsta fólksins með þyngstu greiðslubyrðina“.

Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er staðfest að vaxtabætur falla niður frá 1. janúar 2027. Mánudaginn 5. október spurði ég því forsætisráðherra á Alþingi hvað hefði breyst. Hvers vegna væri nú rétt að afnema stuðning sem hún hafði sjálf talið svo mikilvægan? Væri staða þessara heimila orðin svo góð að þau þyrftu ekki lengur á honum að halda?

Við því fékkst ekki skýrt svar.

Stuðningurinn hverfur og álögurnar aukast

Eðlilegt er að endurskoða vaxtabótakerfið. En brottfall vaxtabóta verður að skoða í samhengi við aðrar breytingar fjárlagafrumvarpsins. Á sama tíma og mörg heimili missa stuðning standa þau frammi fyrir auknum álögum. Hækkanirnar lenda líka á fólkinu sem forsætisráðherra lýsti sem tekjulægsta fólkinu með þyngstu greiðslubyrðina.

Forsætisráðherra vísaði til þess að fyrri ríkisstjórn hefði veikt kerfið og að fjármununum yrði beint í önnur úrræði, meðal annars hlutdeildarlán. Hún útskýrði hins vegar ekki hvaða stuðningur tæki við hjá þeim sem missa vaxtabæturnar. Nýtast úrræðin fólki sem þegar hefur keypt sér heimili og glímir við þunga greiðslubyrði?

Að kerfi hafi veikst réttlætir ekki eitt og sér að afnema stuðninginn sem eftir stendur. Spurningin er hvað tekur við hjá fólkinu.

Ábyrgur rekstur ríkissjóðs er grundvallaratriði. En það skiptir máli hvernig jafnvægi er náð og hver ber kostnaðinn. Markmið um hallalaus fjárlög leysir stjórnvöld ekki undan því að meta afleiðingarnar fyrir heimilin.

Lægri verðbólga krefst samræmis

Ábyrgð í ríkisfjármálum snýst einnig um að draga úr verðbólgu. Þegar ríki og sveitarfélög hækka gjaldskrár og skatta án samræmdrar stefnu aukast útgjöld heimilanna. Hækkanir sem mælast í vísitölu neysluverðs ýta henni jafnframt upp.

Aðhald getur dregið úr eftirspurn og verðbólguþrýstingi. Því þarf að meta bæði þau áhrif og verðhækkandi áhrif gjalda og skatta. Velja þarf aðgerðir sem styðja við hjöðnun verðbólgu án óhóflegra byrða á viðkvæm heimili.

Þetta er hugsunin að baki Heimilissátt Framsóknar: að milda álögur, meta samanlögð áhrif skatta, gjalda og bóta á ólíkar fjölskyldur og samræma gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga markmiðinu um lægri verðbólgu. Heimili og fyrirtæki þurfa fyrirsjáanleika til að skipuleggja útgjöld og fjárfestingar.

Vonandi sér ríkisstjórnin að sér og leggur fram aðgerðir í þessa átt. Enn er svigrúm til að breyta frumvarpinu, verja viðkvæmustu heimilin og samræma ákvarðanir hins opinbera.

Hefur ríkisstjórnin reiknað áhrifin?

Brottfall vaxtabóta, gjaldahækkanir og frysting barnabóta og skerðingarmarka geta komið niður á sama heimilinu. Við bætast möguleg áhrif bankaskatts á lánskjör og verðlagsáhrif á verðtryggðar skuldir. Fjölskyldan stendur undir heildinni, þótt ákvarðanirnar séu kynntar hver í sínu lagi.

Þess vegna spurði ég forsætisráðherra einnig hvort ríkisstjórnin hefði greint eða óskað eftir greiningu á samanlögðum áhrifum aðgerðanna á heimilin. Hún vísaði til greiningar frá sumrinu um aukinn kaupmátt frá árinu 2024. En liðinn kaupmáttarvöxtur svarar ekki spurningunni um kostnað nýrra aðgerða.

Hvað þýðir frumvarpið fyrir einstætt foreldri, barnafjölskyldu með þung húsnæðislán eða tekjulágt par? Hver verður samanlögð byrði breytinganna? Hversu stórum hluta ráðstöfunartekna þurfa þessi heimili að verja í aukinn kostnað?

Útreikningar okkar í Framsókn sýna að byrðin leggst hlutfallslega þyngst á tekjulágar fjölskyldur. Þær hafa minnst svigrúm til að mæta auknum útgjöldum og finna mest fyrir því þegar stuðningur minnkar samhliða hækkunum. Hvernig samræmist það loforðinu um að breiðu bökin beri byrðarnar?

Svar óskast

Ríkisstjórnin þarf að sýna hvað breytingarnar þýða fyrir ráðstöfunartekjur, útgjöld og skuldir ólíkra fjölskyldna. Hafi hún unnið slíkt heildarmat á hún að birta það. Hafi hún ekki gert það þarf matið að liggja fyrir áður en Alþingi afgreiðir fjárlagafrumvarpið.

Það er forsenda upplýstrar umræðu að þingmenn og almenningur geti séð heildarmyndina. Án hennar er hætta á að einstakar ákvarðanir virðist viðráðanlegar þótt samanlögð áhrif þeirra séu íþyngjandi.

Það nægir ekki að vita hvað aðgerðirnar skila ríkissjóði. Ríkisstjórnin verður líka að sýna hver fær reikninginn og hvort viðkomandi hafi svigrúm til að greiða hann.

Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að stuðla að friði á vinnumarkaði eru skref í rétta átt, en aðeins skref.

Höfundur er þingmaður Framsóknar.

Nýjast