Vilja kortleggja stöðu innflytjenda á Íslandi

Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri og einn þeirra sem standa að uppbyggingu miðstöðvar…
Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri og einn þeirra sem standa að uppbyggingu miðstöðvarinnar. Mynd: Aðsend/HA.

Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda við Háskólann á Akureyri vill byggja upp mun betri og samfelldari upplýsingar um stöðu innflytjenda á Íslandi. Meðal stærstu verkefna sem eru í undirbúningi er landskönnun sem yrði endurtekin á þriggja ára fresti og gæti meðal annars varpað ljósi á atvinnu, íslenskukunnáttu, félagslega þátttöku, aðgengi að þjónustu og upplifun fólks af því að tilheyra íslensku samfélagi.

Miðstöðin var formlega opnuð í apríl og hefur starfið síðan einkum snúist um að byggja upp samstarf, þróa rannsóknarverkefni, sækja um fjármögnun og greina hvar helst vantar þekkingu.

Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri og einn þeirra sem standa að uppbyggingu miðstöðvarinnar, segir samfélagið hafa breyst mjög hratt með auknum innflutningi fólks til landsins en þekkingin á áhrifum þeirrar þróunar ekki vaxið á sama hraða.

Hann bendir á að undir lok árs 2023 hafi meira en 18 prósent íbúa landsins verið fædd erlendis. Þrátt fyrir það vanti enn samfelld gögn um meðal annars hvernig innflytjendum gangi að nýta menntun sína, læra íslensku, taka þátt í samfélaginu og nýta opinbera þjónustu.

„Ísland ætti ekki að þurfa að taka stórar ákvarðanir um innflytjendamál og aðlögun án þess að hafa góð gögn að baki,“ segir Markus.

Landskönnun á þriggja ára fresti

Eitt mikilvægasta verkefnið sem miðstöðin vill koma á fót er regluleg landskönnun meðal innflytjenda.

Markmiðið er að spyrja sambærilegra spurninga á þriggja ára fresti um meðal annars tungumál, atvinnu, menntun, félagsleg tengsl, mismunun, opinbera þjónustu og upplifun fólks af því að tilheyra samfélaginu.

Með því væri hægt að fylgjast með þróuninni yfir lengri tíma í stað þess að byggja aðeins á einstökum rannsóknum.

Miðstöðin vill einnig safna rannsóknum og gögnum á einum stað og vinna stutt og aðgengilegt efni úr niðurstöðum fyrir sveitarfélög og stjórnvöld.

Markus segir mikilvægt að rannsóknir skili sér út úr háskólasamfélaginu og inn í raunverulega ákvarðanatöku.

„Rannsóknir verða gagnlegar þegar þær hjálpa einhverjum að taka betri ákvörðun,“ segir hann.

Sveitarfélög gætu til dæmis leitað til miðstöðvarinnar til að kanna hvort íslenskunámskeið nái til réttra hópa, hvers vegna ákveðin þjónusta sé lítið nýtt eða hvort fólk með mikla menntun fái störf sem hæfa menntun þess.

Landsbyggðin þarf ekki að vera eins og Reykjavík

Staða innflytjenda utan höfuðborgarsvæðisins verður einnig sérstakt viðfangsefni miðstöðvarinnar.

Markus segir einfaldasta svarið við því hvað vitað sé um stöðu innflytjenda á landsbyggðinni vera að þekkingin sé enn of lítil.

Minni samfélög geti haft færri sérhæfða þjónustumöguleika, færri íslenskunámskeið og þrengra úrval starfa. Á móti geti nálægðin í minni samfélögum skapað annars konar félagsleg tengsl og tækifæri til þátttöku.

„Við eigum ekki einfaldlega að gera ráð fyrir því að Reykjavík sé betri eða að landsbyggðin sé verri. Við þurfum samanburð og gögn,“ segir hann.

Markus telur staðsetningu miðstöðvarinnar við Háskólann á Akureyri mikilvæga í því samhengi. Þar gefist tækifæri til að rannsaka innflytjendamál án þess að höfuðborgarsvæðið sé sjálfkrafa lagt til grundvallar þegar íslenskt samfélag er skoðað.

Vill samstarf við sveitarfélög á Norðurlandi

Markus sér fyrir sér náið samstarf við sveitarfélög á Norðurlandi, meðal annars með staðbundnum könnunum, rýnihópum og mati á opinberri þjónustu.

Einnig mætti prófa nýjar leiðir á Norðurlandi áður en þær yrðu teknar upp annars staðar.

Hann leggur áherslu á að innflytjendur sjálfir verði þátttakendur í slíkri vinnu frá upphafi, fremur en að vera aðeins sá hópur sem rannsakendur eða stjórnvöld fjalla um.

Samhliða rannsóknarstarfinu er einnig verið að þróa nám tengt miðstöðinni, meðal annars á sviði íslensku sem annars máls með sérstaka áherslu á fullorðna.

Spurning um fjármagn

Stærsta hindrunin í uppbyggingu miðstöðvarinnar er þó fjármögnun. Markus segir margar góðar hugmyndir liggja fyrir en miðstöðin hafi enn ekki tryggan fjárhagslegan grunn til að ráða fast rannsóknarteymi og byggja upp þá langtímagagnasöfnun sem stefnt er að.

„Við höfum þekkinguna, samstarfið og rannsóknarhugmyndirnar. Það sem okkur vantar núna er fjárhagslegur grunnur sem gerir okkur kleift að byggja upp raunverulega sjálfbæra rannsóknamiðstöð til framtíðar,“ segir Markus.

 

Nýjast