Frestur fyrirtækis til að skila inn athugasemdum er lögbundinn. Stofnunin er að skoða málið nánar, m.a. hvort gripið verði til frekari aðgerða. Umhverfisstofnun barst ábending frá Kastljósi um að starfsemi Becromal Iceland í Krossanesi sé ekki í samræmi við ákvæði starfsleyfis verksmiðjunnar. Umhverfisstofnun fór í eftirlit til fyrirtækisins samdægurs til þess að ganga úr skugga um hvort ábending sé á rökum reist.
Fyrirtækið hóf starfsemi sumarið 2009 en byrjaði smátt með einungis eina vélasamstæðu af sex. Umhverfisstofnun fór í eftirlit þá um haustið í þeim megintilgangi að skoða aðstöðuna, koma á formlegum tengslum milli aðila og fara yfir einstök ákvæði starfsleyfisins með fulltrúum fyrirtækisins. Gengið var um fyrirtækið og aðstaða könnuð, þ.á m. mælitæki og mengunarvarnir, ekki síst lekavarnir efnageymslna. Ekki var farið út í mælingar enda starfsemi ekki komin í það umfang að það væri hægt. Haustið 2010 er farið í fyrsta eiginlega eftirlitið. Þá eru komnar í gagnið þrjár vélasamstæður en þar sem umfang starfseminnar er ekki orðið í fullan gang er ekki talin þörf á mælingu heildarlosunar efna fyrr en í upphafi árs 2011. Hins vegar var símæling á pH gildi komin til framkvæmda á þeim tíma.
Frárennsli fyrirtækisins fer í fráveitukerfi Akureyrarbæjar og fer þaðan um bráðabirgðaútrás við Krossanes í grjótgarði við hliðina á hafnarbakkanum. Það er álit Umhverfisstofnunar (og Skipulagsstofnunar, sbr. álit um tilkynningaskyldu) að tímabundin losun um bráðabirgðaútrás hafi ekki umtalsverð umhverfisáhrif. Í starfsleyfi er veitt heimild til losunar til bráðabirgða en jafnframt að frárennsli skuli veitt í hreinsistöð í Sandgerðisbót eigi síðar en 1. ágúst 2012.
Rétt er að nefna að í Kastljósi í gær er vísað til þess að ákvæði í reglugerð um fráveitur og skólp kveði á um að pH eigi að vera á bilinu 6-9, þ.e. að starfsleyfið gefi víðari mörk. Þessi ákvæði eiga við um losun í ferskvatn en ekkert pH gildi sem slíkt á við um losun í sjó í reglugerðinni. Í starfsleyfi er því um að ræða harðari ákvæði en þar er kveðið á um, segir m.a. á vef Umhverfisstofnunar.