Stór jarðskjálfti reið rétt í þessu yfir á Norðurlandi eystra og fannst hann greinilega á Akureyri og Húsavík. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni varð skjálftinn kl. 14:51 og mældist 4,6 að stærð. Upptök skjálftans voru 20 km. NV af Húsavík eða 6,8 km SA af Flatey á Skjálfanda.
Veðurstofunni hefur borist f jöldi tillkynninga um að skjálftinn hafi fundist á Norðurlandi. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt. Viðmælendur Vikublaðsins á Akureyri og Húsavík hafa lýst skjálftanum sem mjög snörpum.
„Ég sat á sófanum og og allt í einu var eins og stórvirk vinnuvél hefði keyrt á húsið. Svo hélt húsið áfram að nötra og svo var eins og það kæmi annað stórt högg á húsið. Mér varð verulega bilt við en það hrundi ekkert niður úr hillum,“ sagði einn viðmælandi á Húsavík.
Einar Hjörleifsson, náttúruvásérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við Rúv að skjálftinn hafi fundist víða á Norðurlandi. Hann bendir á að jarðskjálftahrina hafi verið í gangi í langan tíma á Tjörnesbrotabeltinu norðvestan við Gjögurtá en nú hafi þessi skjálftavirkni færst nær Húsavík því skjálftinn í dag varð á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. „Það er ekki hægt að útiloka að það verði jafnvel stærri skjálfti þarna eða jafn stór,“ segir hann.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur fólk á Facebokk síðu sinni sem býr nálægt þekktum skjálftasvæðum að huga að vörnum og viðbúnaði vegna jarðskjálfta.
Fréttin hefur verið uppfærð