Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur sent frá sér nýjustu tölur um stöðu Covid-19 faraldursins í umdæminu. Þar kemur fram að einn sé í einangrun á Húsavík eftir að hafa greinst með kórónuveiruna og níu eru í sóttkví.
Ekki er vitað hvort smitið tengist bæjarhátíðinni Mærudögum sem fór fram um síðustu helgi.
Samtals eru 78 í sóttkví í umdæminu og 22 í einangrun, langflestir á Akureyri eða 60 í sóttkví og 12 í einangrun.