Mynd frá athöfninni í Listasafninu í gær, sem Daníel Starrason tók. Frá vinstri: Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri MAk, Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra, Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri MAk, Hlynur Hallsson, forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri og Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður atvinnu- og menningarmála Akureyrarbæjar
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, undirrituðu í gær samkomulag um eins árs framlengingu á samstarfsamningi bæjarins og ríkisins um menningarmál og gildir hún út árið 2024.
Ráðherra segir af þessu tilefni að ríkt menningarlíf sé mikilvægur hluti af innviðum hvers samfélags og að hún hyggist skipa starfshóp um framtíðarþróun samstarfs bæjarins og ríkisins í menningarmálum. Ráðherra segir mikilvægt að nýta tækifærið og tengja þessa atvinnustarfsemi betur við opinbera stefnumótun í viðkomandi málaflokkum. Bæjarstjóri tekur undir orð ráðherra og bætir við: „Það er ljóst að Akureyrarbær gæti ekki staðið jafn myndarlega við bakið á þeirri starfsemi sem hér um ræðir ef ekki væri fyrir stuðning ríkisins. Ég tel mikilvægt að tengja þróun samstarfsins við hugmyndir um Akureyri sem svæðisborg og ég tel að það muni gefa okkur, sem þjóð, tilefni til að efla það enn frekar.“