Vikublaðið er komið út. Að vanda er farið um víðan völl í blaði vikunnar.

Meðal efnis:
- Góð verkefnastaða er hjá slippnum á Akureyri. Eitt þeirra verka sem hafist verður handa við eftir sumarfríið er uppsetning á vinnslubúnaði í Oddeyrina, nýtt skip Samherja sem kom til landsins nýverið skip sem hefur getu til að geyma lifandi fisk í tönkum. Rætt er við Magnús Blöndal Gunnarsson markaðsstjóra hjá Slippnum Akureyri.
- Bryggjudagar fóru fram á Þórshöfn um síðastliðna helgi og var mikið um dýrðir. Umfjöllun um hátíðina er á síðu 12. Þau leiðu mistök urðu að á tveimur stöðum í greininni misritaðist að hátíðin hafi farið fram á Raufarhöfn. Mistökin uppgötvuðust eftir að blaðið var sent til prentunar Beðist er innilega afsökunar á þessum klaufaskap og hafa mistökin verið leiðrétt í vefútgáfu blaðsins
- Útlit fyrir að bændur nái inn góðum heyfeng í sumar eru ekki góðar, en ekki öll von úti enn. Rætt er við Sigurgeir Hreinsson framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar.
- Heilsíðuviðtal: Verkmenntaskólinn á Akureyri býður upp á kvöldskóla í húsasmíði næsta vetur. Öll plássin fylltust á augabragði. Rætt er við Baldvin Ringsted sviðsstjóra verk- og fjarnáms hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
- Fjóla Stefánsdóttir heldur um Áskorandapennann.
- Sigþóra Brynja Kristjánsdóttirfærir okkur gómsætar uppskriftir í Matarhorninu
- Þetta og margt fleira í blaðinu í dag
Smelltu hér til að gerast áskrifandi