Hrafnagilsskóli Fengu hljóðnemakerfi og hleðslustöð

Það voru þau mæðginin Helena Sif Guðmundsdóttir og Gunnar Ingi Arnarsson, nemandi í 2. bekk, sem mæt…
Það voru þau mæðginin Helena Sif Guðmundsdóttir og Gunnar Ingi Arnarsson, nemandi í 2. bekk, sem mættu fyrir hönd fyrirtækisins og afhentu skólanum gjöfina Mynd aðsend

Hrafnagilsskóla hefur borist vegleg gjöf frá fyrirtækinu G V Gröfum ehf. en um er að ræða vandað þráðlaust hljóðnemakerfi og hleðslustöð. Þessi nýi búnaður kemur til með að stórbæta öll hljóðgæði á samverustundum skólans.

Það voru þau mæðginin Helena Sif Guðmundsdóttir og Gunnar Ingi Arnarsson, nemandi í 2. bekk, sem mættu fyrir hönd fyrirtækisins og afhentu skólanum búnaðinn formlega. Skólinn þakkaði fyrirtækinu fyrir mikinn velvilja í garð skólans.

Nýjast