Gjaldskrá, vistunartími og gjaldfrjálsir tímar til skoðunar

Hugmyndir um gjaldfrjálsan leikskóla eða ákveðinn fjölda gjaldfrjálsra tíma verða meðal þess sem kemur til umræðu þegar Norðurþing fer í heildstæða endurskoðun á gjaldskrá og fyrirkomulagi leikskólaþjónustu. Vistunartími, opnunartími, afsláttarkerfi og greiðslufyrirkomulag foreldra verða einnig meðal þeirra þátta sem koma til greina.

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á fundi sínum 17. september að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir starfshópi sem taki til endurskoðunar bæði gjaldskrá leikskóla og fyrirkomulag leikskólaþjónustu. Hópurinn á að skila tillögum áður en fjárhagsáætlun fyrir árið 2028 verður unnin. Málinu var vísað til fjölskylduráðs til úrvinnslu.

Rebekka Ásgeirsdóttir, formaður fjölskylduráðs Norðurþings, segir í svörum við fyrirspurn Vikublaðsins að enn liggi ekki nákvæmlega fyrir hvaða þættir þjónustunnar verði teknir til endurskoðunar. Leikskólamál hafi hins vegar verið áberandi fyrir sveitarstjórnarkosningar og í meirihlutasáttmála núverandi meirihluta sé kveðið á um endurskoðun gjaldskrár leikskóla.

Að hennar sögn er eðlilegt að skoða málið víðar en gjaldskrána eina.

„Þessi atriði sem þú telur upp, eins og vistunartími, afsláttarkerfi eða fyrirkomulag greiðslna, eru jú akkúrat þau mál sem voru rædd í vor. Mér finnst því eðlilegt að velta öllum möguleikum upp, skoða kosti þeirra og galla og taka ákvörðun út frá vel ígrunduðu máli,“ segir Rebekka.

Gjaldfrjálsir tímar meðal hugmynda

Hugmyndir um gjaldfrjálsan leikskóla, eða að ákveðinn fjöldi vistunartíma verði gjaldfrjáls, verða einnig teknar til umræðu.

Rebekka segir slíkar hugmyndir hafa komið fram í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og því sé eðlilegt að þær verði á borðinu þegar vinnan hefst.

„Ég tel best að velta upp öllum hugmyndum,“ segir hún.

Ekki hefur hins vegar verið ákveðið hvernig starfshópurinn verður skipaður og því liggur ekki enn fyrir hvort foreldrar, starfsfólk leikskóla eða aðrir hagaðilar fái beina aðkomu að honum.

Gert er ráð fyrir að hópurinn taki til starfa á fjárhagsárinu 2027. Nákvæm tímasetning verður ákveðin af fjölskylduráði en markmiðið er að niðurstöður eða tillögur liggi fyrir að hausti 2027, áður en fjárhagsáætlun fyrir árið 2028 verður afgreidd.

Vill heildstæða skoðun

Rebekka segir ástæðu þess að lagt sé upp með sérstakan starfshóp, í stað þess einfaldlega að breyta gjaldskránni við næstu fjárhagsáætlunargerð, vera þá að fjölmargar hugmyndir séu uppi um framtíð leikskólaþjónustunnar.

Hún segir sameiginlegt markmið fulltrúa meiri- og minnihluta, starfsfólks og foreldra vera að tryggja góða þjónustu fyrir börn og gera leikskólann að eftirsóknarverðum vinnustað.

„Ég tel að áskoranir í fortíð og framtíð séu þannig að við þurfum að skoða þetta heildrænt frekar en að leysa þetta með gjaldskrárbreytingu að hausti og tikka þannig í eitthvað box. Þetta er viðkvæmur og mikilvægur málaflokkur og þeim mun mikilvægara að vinna þetta vel og faglega,“ segir Rebekka.

Hún bendir sérstaklega á að mönnun og álag hafi ítrekað verið til umræðu á undanförnum árum. Þá hafi komið upp sú staða að sveitarfélagið hafi ekki getað boðið öllum börnum leikskólavistun við fyrstu aðlögun eftir 12 mánaða aldur. Við því hafi meðal annars verið brugðist tímabundið með heimgreiðslum til foreldra.

Heimgreiðslur eru enn til umfjöllunar hjá fjölskylduráði og voru reglur um þær til endurskoðunar á fundi ráðsins 8. september.

Rebekka nefnir einnig sérskráningardaga og fyrri starfshóp um starfsaðstæður á Grænuvöllum sem dæmi um þær áskoranir sem komið hafa upp.

„Það er ljóst að það eru og hafa verið ýmsar áskoranir hvað varðar leikskólann. Þetta er ekki málefni sem nóg er að taka sem mál á fundi fjölskylduráðs heldur þarf þetta tíma og góða yfirferð,“ segir hún.

Nýjast